Jarðskjálfti af stærðinni 5 á Richter-skalanum gekk yfir Suður-Kaliforníu í dag. Skjálftinn kom af stað viðvörunarkerfum fjölda bíla, rúður brotnuðu og reykur steig upp af olíuhreinsunarstöð þegar sjálfvirk öryggiskerfi fóru í gang.
Þá þurfti farþegaflugvél sem var við það að lenda á flugvelli borgarinnar að hætta við. Það er gert öryggisins vegna, ef sprungur skyldu hafa myndast á flugbrautinni.
Slökkvilið Los Angeles er á viðbúnaðarstigi og starfsfólk frá meira en 100 slökkviliðsstöðum fer nú um og kannar ástand mikilvægra innviða. Engar fregnir hafa þó borist af alvarlegum slysum á fólki eða víðtækum skemmdum.
Íbúar í Los Angeles voru beðnir um að vera búnir undir það að eftirskjálftar gætu fylgt á eftir þeim fyrsta. Margir skjálftar fylgdu í kjölfarið, þar á meðal einn af stærðinni fjórir komma sex sem reið yfir um tveimur tímum á eftir fyrsta skjálftanum.
Taka jafnan lítið eftir skjálftum
Jarðskjálftar eru ekki ósjaldgæfir í Kaliforníu en þeir eru jafnan litlir og fólk verður almennt lítið vart við þá. Svæðið í kringum Los Angeles, þar sem meira en 18 milljónir manns búa, hefur þó orðið fyrir öflugum jarðskjálftum.
Árið 1994 reið jarðskjálfti yfir Northridge á Los Angeles-svæðinu sem mældist 6,7 á Richter. 57 manns létust af völdum skjálftans, þúsundir slösuðust og tjón á heimilum og innviðum hljóp á milljörðum dollara.