Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur þegið boð Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um stjórnarmyndunarviðræður. Netanjahú stakk upp á því fyrr í dag að þeir myndu skiptast á að gegna embætti forsætisráðherra á næsta kjörtímabili.
Eisenkot er einn helsti andstæðingur Netanjahús og leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann hlaut stjórnarmyndunarumboðið eftir þingkosningar í haust og hefur frest til 6. desember til að mynda stjórn.
Stjórnarmyndun hefur gengið brösulega í Ísrael síðan kosið var. Likud-flokkur Netanjahús og bandalagsflokkar hans misstu meirihluta sinn á þingi, en Eisenkot og hans blokk náðu hins vegar ekki heldur meirihluta og þyrftu að reiða sig á stuðning flokka ísraelskra araba til að tryggja sér meirihluta á þinginu Knesset.
Samkvæmt tillögu Netanjahús fengi Eisenkot að byrja, en fyrri hluta kjörtímabilsins yrði Netanjahú varaforsætisráðherra.
Eisenkot þáði boðið síðdegis.
„Ef Likud-flokkurinn er tilbúinn til raunverulegs samstarfs er ég reiðbúinn til að kanna næstu 24 klukkustundirnar hversu alvarlega hann meinar það,“ sagði Gadi í yfirlýsingu.