Berjast verður við gervigreind með gervigreind. Þetta er niðurstaða Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í net-, tölvu- og hugbúnaðarárásum.
Með tilkomu gervigreindar, tungumálalíkana eða svokallaðra mállíkana, verða slíkar árásir sífellt sjálfvirkari. Árásaraðilar beita gervigreind til að finna veikleika í kerfum með meiri hraða en nokkru sinni fyrr og það sem áður tók vikur getur nú tekið klukkustundir.
Neðar í þessari frétt er að finna skýringar á gervigreind, tungumálalíkönum/mállíkönum, gervigreindarerindrekum og eðli slíkra árása.
„Kannski stærsta áskorunin er að netárásir, tölvuárásir, svik og annað er hætt að vinna á hraða mannsins. Við getum ekki lengur gert ráð fyrir því að hlutirnir taki ákveðinn tíma eða þvíumlíkt,“ segir Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland.
„Gervigreindarerindrekar, sem eru að ráðast á tölvu- og netkerfi, geta framkvæmt sínar aðgerðir miklu hraðar en nokkur manneskja og gegn miklu fleiri skotmörkum á sama tíma.“
Afleiðingarnar geta verið miklar fyrir fólk, fyrirtæki og samfélög. Óvissustig almannavarna var virkjað á miðvikudag vegna netárása. Sviðsstjóri almannavarna segir netárásir á mikilvæga innviði eina helstu ógnina sem steðjar að íslensku samfélagi.
Sjálfvirkur gervigreindarhakkari sem leitar uppi veikleika í varnarskyni
„Hjá Defend Iceland erum við með villuveiðigátt þar sem við beislum þekkingu heiðarlegra hakkara til að brjótast inn áður en aðrir gera það. Samhliða því höfum við síðastliðin þrjú ár verið að þróa okkar gervigreindarhakkara eða svona sjálfvirkan erindreka netárása,“ segir Theódór Ragnar.
Erindrekinn, AI-agent upp á ensku, hugsar eins og árásaraðili og leitar uppi öryggisveikleika í kerfum hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Markmiðið er að finna veikleikana áður en árásaraðilar geta notfært sér þá.
Fyrirtækið hefur fundið 1.826 áður óþekkta öryggisveikleika – þar af yfir 200 sem teljast krítískir eða alvarlegir. Gervigreindarhakkarinn fann krítískan eða alvarlegan veikleika í níu af hverjum tíu verkefnum.
„Þetta eru öryggisveikleikar sem eru þess eðlis að ef þeir hefðu verið misnotaðir, vissulega er búið að laga þá núna, þá hefðu þeir endað í fjölmiðlum eins og við erum að sjá núna mjög mikið og miklu meira heldur en kannski margir áttu von á,“ segir Theódór Ragnar.
„Þetta eru líka áður óþekktir veikleikar, það er að segja veikleikar sem finnast ekki með hefðbundnum leiðum en það náttúrlega bara sýnir kannski mátt tækninnar og hversu hratt gervigreindin hefur þróast yfir í það að geta keppt við bara mjög færa öryggissérfræðinga.“
Verðum að vera á varðbergi öllum stundum
Theódór Ragnar segir fyrirtæki og stofnanir verða að huga talsvert betur að vörnum en fyrir aðeins nokkrum árum.
„Fyrir mína parta þá er það bara þetta breytta hugarfar – að styðja við tölvudeildir og öryggisteymi sem þurfa í auknum mæli að geta beitt þessari tækni til varna.“
Heldur þú að fyrirtæki og stofnanir, sem meðhöndla til dæmis trúnaðarupplýsingar eða geyma mikilvæga innviði, þurfi að áætla að verja meiri kostnaði í að verjast gegn svona árásum?
„Ekki spurning. Það er bara alveg augljóst. Vegna þess að staðan er sú, og það eru ekki neinar ýkjur, að erindrekar netárása sem vinna sjálfir með einföld markmið í huga – markmiðin eru í raun og veru: „Þú átt að brjótast inn“ – þeir eru núna að þreifa úti um allan heim. Og þetta er ekki að fara að minnka,“ svarar Theódór Ragnar.
„Við eigum að gera ráð fyrir því að ef við erum með hluti, að minnsta kosti á internetinu, sem fyrirtæki þá séu sjálfvirk gervigreindartól að reyna að brjótast inn.“
Það liggi í augum uppi að það verði að auka stuðning við tölvu- og öryggisteymi svo hægt sé að takast á við þessa hættu.
„Þetta er raunveruleg áhætta. Þeir sem hafa lent í þessu upp á síðkastið vita að þetta getur sett allt á hliðina. Þjónusta getur dottið niður, hlutir geta hætt að virka og birgjakeðjur geta brotnað. Það er svo margt sem þetta getur haft áhrif á þannig að hundsa þetta væri bara glapræði.“
Torskilin hugtök á mannamáli
Það er fyrirséð að gervigreind eigi eftir að halda áfram að vera stór hluti í umræðunni, til að mynda í ljósi öryggissjónarmiða. Tæknin sem flestir kalla gervigreind er nokkuð ný af nálinni en ekki allir leggja sama skilning í hugtakið.
Theódór Ragnar var beðinn um að fara yfir hvers lags hugbúnaður, gervigreind, tungumálalíkön/mállíkön og erindrekar, væri í einföldu og auðskildu máli. Skilgreiningar má finna hér að neðan.