Frá þessu er greint í tilkynningu frá bænum.
Í menningarhúsum Kópavogs var boðið upp á tónleika, jólaverkstæði, dans og heitt kakó. Í Salnum var opnuð sýning á jólaljósaverkum barna í Vatnsendaskóla og í Náttúrustofu Kópavogs var opnuð sýning á steinasafni Sigga.
Þá voru voru tónleikar á Gerðarsafni og á bókasafni bæjarfélagsins og smiðjur fyrir unga sem aldna.
Útiskemmtun hófst svo klukkan upp úr klukkan 16 með tónlistarflutningi Skólahljómsveitar Kópavogs og svo stigu Þorri og Þura á svið og stýrðu dagskránni.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tendraði svo á jólatré bæjarins með dyggri aðstoð gesta sem töldu niður.
Loks var slegið upp jólaballi með jólasveinum sem kíktu í heimsókn.