Mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísrael viljandi koma í veg fyrir fæðingar á Gaza og eyða Palestínumönnum. Það sé gert með því að beina árásum sérstaklega að konum og stúlkum á Gaza. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna.
Um 30 konur og stúlkur drepnar daglega
Ísraelsher hefur gert fjölda árása á heilbrigðisstarfsfólk og innviði frá upphafi stríðsins. Mannréttindasamtök segja herinn hafa kerfisbundið eyðilagt borgaralega innviði, þar með talið í heilbrigðisþjónustu.
Í nýrri skýrslu Amnesty International sem kom út í vikunni kemur fram að herinn hafi að jafnaði drepið um 30 konur og stúlkur daglega síðan í október 2023. Á sama tíma hafi Ísrael takmarkað aðgengi hjálparsamtaka að svæðinu. Það hafi einnig dregið fjölda kvenna til dauða.
„Undanfarin þrjú ár hefur Ísrael sýnt ótvíræðan og markvissan ásetning um að eyða Palestínumönnum á Gaza. Konur og stúlkur á Gaza hafa þurft að þola linnulausar árásir sem hafa haft áhrif á alla þætti daglegs lífs þeirra,“ segir Agnés Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Skýrslan byggir á 228 viðtölum sem tekin voru frá október 2023 til október í ár, þar á meðal við konur og stúlkur, heilbirgðisstarfsmenn, starfsmenn hjálparsamtaka og Sameinuðu þjóðanna og önnur vitni á Gaza.
Hún byggi einnig á myndum og myndskeiðum, sjúkragögnum, gervihnattarmyndum og umfangsmikilli rannsóknarvinnu palestínskra, ísraelskra og alþjóðlegra heimildarmanna.
Allar níu frjósemisstofurnar á Gaza lagðar í rúst
Í henni er sagt frá reynslu kvenna sem hafa meðal annars þurft að fæða fyrirbura meðan á árásum Ísraelshers stendur, herinn hefur gert árás á sjúkrahús sem sinna nýburum og talað er við konur sem hafa misst fóstur eða fætt andvana börn.
Allar níu frjósemisstofurnar sem voru á Gaza hafa verið lagðar í rúst og eggjum og fósturvísum sem þar voru geymdir eytt.
Í skýrslunni er rætt við konu sem lýsti því að hafa orðið ófrísk af tvíburum eftir tæknifrjóvgun. Hún hafi síðar fengið krampa og blæðingu eftir loftárás í nágrenninu. Nokkrum vikum síðar fæddi hún tvíburana en þeir dóu stuttu eftir fæðingu.
Fósturvísar konunnar voru geymdir á frjósemisstofu sem var eyðilögð og hún hefur ekki getað yfirgefið Gaza til að komast í meðferð.
„Mér fannst eins og ég hefði misst allt og ég var vonlaus,“ sagði konan sem er kölluð Azza í skýrslunni. Það er þó ekki hennar rétta nafn.
Hún býr í tjaldi með eiginmanni sínum, tengdamóður og fleiri ættingjum. „Ég sit oft ein og græt.“
Stríðið hefur einnig orðið til þess að konur hætta við að eignast börn.
Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna komst að því fyrir rúmlega ári að gjörðir Ísraelshers á Gaza uppfylli fjögur af fimm skilyrðum hópmorðs, sem í daglegu tali er kallað þjóðarmorð.
Að beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar er meðal þessara skilyrða.
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísrael viljandi koma í veg fyrir fæðingar á Gaza og eyða Palestínumönnum. Það sé gert með því að beina árásum sérstaklega að konum og stúlkum á Gaza. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna.
Um 30 konur og stúlkur drepnar daglega
Ísraelsher hefur gert fjölda árása á heilbrigðisstarfsfólk og innviði frá upphafi stríðsins. Mannréttindasamtök segja herinn hafa kerfisbundið eyðilagt borgaralega innviði, þar með talið í heilbrigðisþjónustu.
Í nýrri skýrslu Amnesty International sem kom út í vikunni kemur fram að herinn hafi að jafnaði drepið um 30 konur og stúlkur daglega síðan í október 2023. Á sama tíma hafi Ísrael takmarkað aðgengi hjálparsamtaka að svæðinu. Það hafi einnig dregið fjölda kvenna til dauða.
„Undanfarin þrjú ár hefur Ísrael sýnt ótvíræðan og markvissan ásetning um að eyða Palestínumönnum á Gaza. Konur og stúlkur á Gaza hafa þurft að þola linnulausar árásir sem hafa haft áhrif á alla þætti daglegs lífs þeirra,“ segir Agnés Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Skýrslan byggir á 228 viðtölum sem tekin voru frá október 2023 til október í ár. Þar á meðal við konur og stúlkur, heilbirgðisstarfsmenn, starfsmenn hjálparsamtaka og Sameinuðu þjóðanna og önnur vitni á Gaza.
Hún byggi einnig á myndum og myndskeiðum, sjúkragögnum, gervihattarmyndum og umfangsmikilli rannsóknarvinnu palestínskra, ísraelskra og alþjóðlegra heimildarmanna.
Allar níu frjósemisstofurnar á Gaza lagðar í rúst
Í henni er sagt frá reynslu kvenna sem hafa meðal annars þurft að fæða fyrirbura meðan á árásum Ísraelshers stendur, herinn hefur gert árás á sjúkrahús sem sinna nýburum og talað er við konur sem hafa misst fóstur eða fætt andvana börn.
Allar níu frjósemisstofurnar sem voru á Gaza hafa verið lagðar í rúst og eggjum og fósturvísum, sem þar voru geymdir, eytt.
Í skýrslunni er rætt við konu sem lýsti því að hafa orðið ófrísk af tvíburum eftir tæknifrjóvgun. Hún hafi síðar fengið krampa og blæðingu eftir loftárás í nágrenninu. Nokkrum vikum síðar fæddi hún tvíburana en þeir dóu stuttu eftir fæðingu.
Fósturvísar konunnar voru geymdir á frjósemsstofu sem var eyðilögð og hún hefur ekki getað yfirgefið Gaza til að komast í meðferð.
„Mér fannst eins og ég hefði misst allt og ég var vonlaus,“ sagði konan sem er kölluð Azza í skýrslunni. Það er þó ekki hennar rétta nafn.
Hún býr í tjaldi með eiginmanni sínum, tengdamóður og fleiri ættingjum. „Ég sit oft ein og græt.“
Stríðið hefur einnig orðið til þess að konur hætti við að eignast börn.