Skjálftinn reið þar yfir um klukkan 9.30 að staðartíma, eða 17.30 að íslenskum tíma.
Upptök skjálftans voru um 30 kílómetrum suðvestur af miðborg Los Angeles og aðeins um sex kílómetrum af strandborginni Manhattan Beach þar sem um 35 þúsund manns búa.
Veðurstofa Bandaríkjanna segir að skjálftinn hafi verið um 5 að stærð. Í kjölfarið mældust tveir smærri skjálftar á svæðinu, annar um 3 að stærð og hinn um 2,5 að stærð.
Fyrir rúmri viku mældist skjálfti 4 að stærð.
Slökkviliðið í Los Angeles hefur ræst út mannskap frá 106 hverfisstöðvum til þess að kanna hvort tjón hafi orðið á innviðum, að sögn AP-fréttaveitunnar. Ekki liggur fyrir hvort einhvern hafi sakað.
Ertu í Los Angeles? Fannstu fyrir skjálftanum? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Ertu í Los Angeles? Fannstu fyrir skjálftanum? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.