Markús Már Eldjárn Arnórsson, 22 ára sjómaður, segir að hann hafi ekki óttast að hann myndi farast þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudagskvöldið austur af landinu. Hann og aðrir áhafnarmeðlimir voru í sjónum í meira en fjóra klukkutíma áður en aðstoð barst. Móðir hans var honum ofarlega í huga á þeim tíma.
„Kannski svolítið klisjukennt en ég hugsaði bara til mömmu minnar. Það var svona það sem ég hugsaði oftast,“ segir hann.
„Allan tímann einhvern veginn þá vissi ég að það væri ekki í raun spurning um hvort ég fengi aftur að fara aftur til fólksins míns, það var bara hversu lengi ég þyrfti að líða þetta þangað til það myndi koma að því,“ segir Markús.
Hlógu þegar sjór kom fyrst inn í bátinn
Markús segir að skipið hafi nýlega lokið siglingu austur þegar atburðarásin hófst.
„Við höfðum verið norðan við landið og færðum okkur þarna austan fyrir þar sem við endum einhverjum 60 sjómílum austar við landið,“ segir hann
„Við erum að leggja eina trossu, sem sagt samsetningu af netum. Á meðan við erum að leggja þessa fyrri trossu þá skríður alda yfir bátinn og skellur harkalega aftan á lúguna sem er opin, eina þeirra. Og við það þá brotnar hún.“
Hann segir að lítið fát hafi komið á skipverja þegar þetta gerðist og þeir hafi haldið vinnu sinni áfram. Síðar meir hafi sjór byrjað að flæða inn í bátinn.
„Og það er bara hlegið vel og grínast eitthvað yfir því að menn séu orðnir eitthvað blautir í fæturna og, og farið að flæða eitthvað inn á stakkbuxurnar hjá okkur,“ segir Markús.
„Síðan heldur þetta eitthvað áfram og áfram og við erum mjög langan tíma að gera okkur grein fyrir því að, að það er eitthvað alvarlegt“
Þetta hafi ekki verið í fyrsta skipti sem alda hafi komið inn um bátslúguna á meðan unnið væri að því að leggja út net.
„Það gerðist eiginlega í hvert einasta skipti,“ segir hann.
„Við erum að missa skipið“
Þó hafi óvenjulega mikið af sjó verið komið inn í bátinn. Ekki löngu seinna hafi tvær grímur byrjað að renna á áhöfnina.
„Þetta verður eiginlega ekki raunverulegt, allavega fyrir mér, fyrr en vélstjórinn er kominn niður, horfir þarna inn á netaganginn og segir bara: „Við erum að missa skipið,““ segir Markús.
Stuttu síðar hafi skipstjórinn komið niður og kallað alla menn upp í brú. Þar hafi allir byrjað að klæða sig í blautgalla.
„Síðan komumst við að því að það eru ekki til nógu margir nýir gallar,“ segir Markús. Við leit hafi fundist þrír æfingagallar og sem betur fer þar sem stuttu síðar hafi skipið verið komið á hliðina.
Áhöfnin hafi skipst í tvo hópa, þá sem voru ofan á skipinu bakborðsmegin og svo hina sem urðu eftir fyrir neðan.
„Það voru einhverjir tveir sem voru neðan megin, minnir mig, sem náðu síðan að skríða upp skipið og verða hluti af þessari stærri heild sem myndaðist fyrir ofan,“ segir Markús sem segist hafa haft miklar áhyggjur af þeim sem voru neðar á skipinu þar sem þeir hefðu þurft að vera lengur í sjónum.
Hvernig var að horfa á eftir skipsverjum sínum stökkva út í ólgandi haf?
„Ég vildi ekki trúa þessu, tími skipaslysa á Íslandi, ég taldi hann bara búinn, þetta átti ekki að gerast. Ég var bara skelfingu lostinn,“ segir Markús sem segist hafa upplifað tilfinninguna að hann væri utan við sjálfan sig að horfa inn.
„Aldrei fundið neina tilfinningu líka þessari áður á ævinni og finn hana vonandi aldrei aftur,“ segir Markús.
Komust ekki í björgunarbátana
Aðspurður hvað hafi orðið af björgunarbátunum á skipinu segir Markús að ekki hafi tekist að komast í þá. Enginn skipverja hafi til eins þeirra þegar hann losnaði frá skipinu.
„Og það næst ekkert í hann aftur. Þetta hefði verið allt of mikill háski fyrir einn eða meira að segja sex menn að reyna að synda eitthvað eftir honum,“ segir Markús.
„Þessir gallar eru mjög góðir upp á það að halda mönnum á lífi úti á sjó, en um leið og þú ferð að færa þig svona svakalega mikið til og reynir að brjóta þig frá einhverri heild, þá náttúrulega minnka líkurnar þínar alveg talsvert. Þannig að þeir tóku bara þá réttu ákvörðun að treysta bara á gallana,“ segir Markús.
Hinn báturinn hafi verið fastur og telur Markús að báturinn hafi blásist upp of snemma. Hið undarlega sé að aðstæðunum hafi fylgt mikil ró þrátt fyrir að allir hafi verið hræddir.
„Allir voru frekar rólegir og ég held að það hafi bara verið einhverjir tveir eða þrír sem héldu í rauninni bara höfði,“ segir Markús. „Og ef maður sér það þá er mikið léttara að gera það sjálfur.“
Allir skipverjar hafi reynt eftir fremsta megni að aðstoða hver annan. Þeir sem voru ofar á skipinu hafi reynt að koma þeim tveimur sem voru neðar til aðstoðar. Þeir hafi undir eigin krafti komist upp skipið. Jacek, einn þeirra sem lést síðar um kvöldið, hafi átt erfitt með þetta.
„Hann sagði mér bara rétt eftir að við vorum komnir út úr brúnni að hann hefði fengið eitthvað hnjask á sig sem væri líklegast hnéskeljabrot,“ segir Markús.
„Það var alveg heljarinnar verk að koma honum upp og var það, held ég, Pavel, bátsmaðurinn okkar, hann bjargaði honum alveg,“ segir Markús.
„Hann var líka einn af þessum mönnum sem ég hélt alveg höfði og vissi alveg hvað hann átti að gera og notaði alla þá þekkingu sem hann hafði til þess að koma okkur til bjargar. Og ég er bara eilíflega þakklátur honum.“
Stuttu síðar hafi hópurinn verið samankominn á hlið skipsins.
„Þá vorum við með reipisbút sem við náðum allir að halda í á milli okkar. Og síðan var það eiginlega bara að sitja þarna í röð og bíða þangað til að alda tæki okkur niður,“ segir Markús.
Ullarpeysa frá látnum frænda bjargaði heilsunni
Markús segir, líkt og Ásgeir Eli Gerðarson, annar skipverji Jökuls sem sagði frá reynslu sinni í gær, að talstöð sem skipverjar höfðu hafi skipt öllu máli.
„Ég skil það sem svo að það sé takmörkuð drægni á þessu, við reynum að kalla mjög mikið í talstöðina að það sé um neyðarástand að ræða og við séum ellefu menn þarna úti í hafi,“ segir Markús.
„Að heyra síðan kallið frá Landhelgisgæslunni, að hjálp væri á leiðinni, það hjálpaði ótrúlega mikið.“
Ég var mjög heppinn að þegar við vorum reknir upp í brú var ég klæddur í bara besta efnið sem er hægt að hafa, íslenska ull,“ segir Markús en peysuna sem hann var klæddur í hafði hann fengið frá frænda sínum sem lést fyrir nokkrum árum.
Trúir þú að hún hafi bjargað þér?
„Ég er ekki frá því að ég hafi líkamlega komið bestur út úr þessu. Ég held að það sé alveg peysunni að þakka,“ segir Markús.
Ætlar að þiggja hjálp vegna áfallsins
Markús segir erfitt að horfast í augu við það að hann hafi ekki komist af en ekki þeir þrír sem létust. „Mann langar náttúrulega bara að hoppa húrra fyrir því að maður hafi komist þetta af en að hugsa til þeirra sem höfðu þetta ekki af og til fjölskyldunnar, þetta voru yndislegir menn allir þrír,“ segir Markús.
Mennirnir þrír sem létust hétu: Aðalsteinn Steinþórsson, 59 ára, Eggert Ellertsson, 41 árs og Jacek Belina, 52 ára.
Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og sjómaður, sem sjálfur lenti í sjóslysi 2015, sagði fyrr í dag að mikilvægt væri fyrir skipsverja að ræða slysið og leita sér aðstoðar.
„Ég sé það alveg fyrir mér,“ segir Markús.
„Ég er enn þá að reyna bara að melta í rauninni hvað gerðist. Ég held að ég geri mér enn þá ekki fulla grein fyrir því. En það eru jú allar líkur á því að ég þiggi einhverja hjálp,“ segir hann.
Hann segist ekki vera sami maðurinn eftir slysið og hann hafi lært að meta það sem hann hefur.
„Það verður ekki einn einasti dagur eftir þetta sem ég þakka ekki fyrir,“ segir Markús.