Frederiksen olli nokkrum úlfaþyti í dönskum stjórnmálum í vikunni með ummælum um útlendingamál í hlaðvarpi fjölmiðilsins B.T. Sérstaklega fór tilvísun hennar í rasíska samsæriskenningu fyrir brjóstið á ungliðahreyfingu jafnaðarmannaflokksins og stuðningsflokki í ríkisstjórn sem hótaði að hætta stuðningi ef Frederiksen héldi áfram á sömu braut.
Samstarfsflokkar Jafnaðarmannaflokksins á Evrópuþinginu funduðu ennfremur vegna ummæla Frederiksen.
„Ég styð ekki mikil útskipti þjóðar [d. stor befolkningsudskiftning]. Við erum danskt samfélag og við myndum danskan innfæddan kynstofn. Auðvitað þróast hann þegar nýtt fólk sest að hér en það er líka nauðsynlegt að Danmörk hafi áfram sterka meirihlutamenningu í framtíðinni,“ sagði Frederiksen í hlaðvarpinu Borgerlig tabloid.
Gagnrýnendum danska forsætisráðherrans þótti hann þar gefa fjarhægri samsæriskenningu um „útskiptin miklu“ undir fótinn. Kenningin gengur út á að valdastétt í vestrænum ríkjum reyni vísvitandi að skipta hvítum og oft kristnum íbúum þeirra út fyrir þeldökka innflytjendur, oft múslima.
Frederiksen vísaði sjálf allri gagnrýni á bug og sagðist ekki láta draga sig í dilka með hægriöfgamönnum.
Ekki séð viðtalið sjálf
Danski Jafnaðarmannaflokkurinn og Samfylkingin eru systurflokkar. Kristrún, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagðist í viðtali við fréttastofu í dag ekki hafa séð viðtalið við Frederiksen og að hún vissi ekki í hvaða samhengi ummæli hennar hefðu fallið. Frederiksen hefði sjálf gefið til kynna að hún hefði ekki endilega vísað til samsæriskenningarinnar.
„Þannig að ég get ekki verið að svara fyrir þessi ummæli. Ég veit alveg hvernig ég nálgast þennan málaflokk. Það þarf að tryggja stjórn en það þarf líka að tryggja breiða sátt og að fólk geti aðlagast að íslenskum samfélagi undir eðlilegum forsendum og fái aðstoð til þess, til dæmis við íslensku,“ sagði Kristrún.
Frederiksen lagði einnig áherslu í hlaðvarpsviðtalinu á mikilvægi þess að í Danmörku yrði áfram sterkur menningarlegur meirihluti þrátt fyrir fjölgun innflytjenda. Talaði hún um innfædda Dani sem sinn eigin „kynstofn“ (d. stamme).
„Ég á svolítið erfitt með að svara fyrir orð Mette í þessu samhengi. Ég aðhyllist ekki svona samsæriskenningar. Ég skil alveg nauðsyn þess að við náum breiðri sátt um útlendingmál í samfélaginu og fólk geti verið öruggt hér á landi, hvort sem það hafi fæðst hér eða er að koma frá öðru landi. Þar auðvitað skiptir stjórn, bæði á landamærum en líka inngilding, miklu máli,“ sagði Kristrún um þau ummæli.
Ekki sammála í einu og öllu
Útlendingamál eru viðkvæmur málaflokkur og áskorun að tala um þau, að sögn Kristrúnar.
„Við höfum reynt að ná styrkri stjórn á landamærunum en á sama tíma höfum verið verið að koma inn með önnur mál og lagt áherslu á að fólk sem hér býr búi við góða inngildingu og fái líka íslensk kjör,“ sagði hún.
Forsætisráðherra segist alltaf hafa átt mjög góð samskipti við Frederiksen.
„En ég er ekkert sammála henni eða því sem þau gera hundrað prósent í öllum atriðum, ekki frekar en nokkur annar forsætisráðherra í heiminum sem er að leiða jafnaðarmannaflokk. Það er auðvitað bara áherslumunur þar á og ég get ekki svarað fyrir allt sem hún gerir en við eigum engu að síður mjög gott samstarf,“ sagði Kristrún.