Þetta kemur fram í svari Karls Inga Vilbertssonar varahéraðssaksóknara við fyrirspurn Vísis. Málið fór til ákærenda þann 14. september og var hans hlutverk að taka ákvörðun hvort ákæra yrði gefin út í málinu.
Ákveðið var að fella málið niður í lok október. Sú ákvörðun hefur verið kærð og er beðið eftir niðurstöðu ríkissaksóknara.
Þann 17. mars var ungur karlmaður handtekinn á Akranesi grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni á leikskólanum Garðaseli. Honum var í kjölfarið vikið úr starfi á meðan málið var í rannsókn. Maðurinn er ekki frá Akranesi og hafði ekki starfað lengi á leikskólanum þegar málið kom upp.
Hann var handtekinn þegar málið kom upp og sleppt úr haldi skömmu síðar.