„Staðan er þannig að viðbragðsaðilar eru að tala sig saman og við erum að undirbúa okkur undir þennan veðurhvell sem kemur í kvöld,“ segir Jóhann í samtali við blaðamann en hann segir útlit fyrir storm eilítið ólíkan þeim sem reið yfir þann 14. október.
Áhyggjulaus inn í nóttina
„Þetta er reyndar allt, allt önnur átt heldur en var þarna 14. október í fyrra þegar húsþökin fuku af hérna á Siglufirði. En við erum bara undirbúnir undir það sem koma skal,“ segir hann. Fólk sé hvatt til þess að huga að öllum lausamunum í kringum fasteignir sínar.
„Það á bæði við um eigendur húsa og byggingarsvæði og iðnaðarsvæði. Við hvetjum líka eigendur smábáta til þess að kíkja í höfnina og tryggja að festingar á bátum séu í lagi,“ segir hann og bætir við „þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur inn í nóttina.“
Þrátt fyrir óveður í aðsigi sé mjög stillt veður á Siglufirði, þar sem Jóhann er staddur.
„Akkúrat núna hjá okkur er stafalogn þannig að þetta hlýtur að vera lognið á undan storminum.“
Veðurstofan færði gula veðurviðvörun sem gefin hafði verið út fyrir Strandir og Norðurland vestra yfir í appelsínugula fyrir skömmu og tekur hún gildi klukkan 22 í kvöld. Vindhviður á Norðurlandi geta staðbundið náð allt að 40 metrum á sekúndu miðað við núverandi spá, að sögn veðurfræðings.
Læra af hverju einasta útkalli
Jóhann segir mikilvægt að fólk sem reikni með því að vera á ferðinni í kvöld eða í nótt á svæðinu fylgist vel með spám og færð á vegum.
„Hvernig sem hún kemur svo til með að leggjast yfir okkur. Það skiptir svolitlu máli hvernig vindurinn kemur niður fjöllin hérna og það þarf ekki mikið til þess að ef lægðin snýr sér aðeins verði þá hviðótt,“ segir hann og ítrekar „hviðóttara veður heldur en það gæti þá annars orðið.“
Sjá einnig: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“
Því hafi viðbragðsaðilar undirbúið sig undir erfið veðurskilyrði, þá sérstaklega ef foktjón verði og þurfi að fergja búnað eða brak.
„Ef það verður foktjón þá erum við búin að tryggja það að þær bjargir sem við þurfum til þess að fergja dót séu klárar,“ segir hann.
Eruð þið að nýta reynsluna síðan í október til þess að undirbúa ykkur?
„Já, í hverju einasta útkalli sem við tökumst á við, í hverju sem það er, þá lærum við alltaf meira fyrir næsta atburð sem við þurfum að takast á við.“