Eisenkot er einn helsti andstæðingur Netanjahú og var hans stærsti keppinautur í nýliðnum þingkosningum.
Mánuður er liðinn frá þingkosningum í Ísrael þar sem Netanjahú og fylking hans hlutu 53 sæti en fylking Eisenkots 48 þingsæti. Arabaflokkar hlutu 19 sæti.
Þannig er hvorug fylkingin með hreinan þingmeirihluta, en til þess þyrfti 61 þingmann.
Fyrr í mánuðinum veitti Isaac Herzog, forseti landsins, Eisenkot umboð til ríkisstjórnarmyndunar og hefur hann haft frest til 6. desember til þess að mynda stjórn.
Stjórnarmyndun hefur þó gengið hægt fyrir sig og Eisenkot sakaði nýlega Netanjahú um að tefja viljandi fyrir stjórnarmyndun þar til fresturinn rynni út.
Netanjahú greindi frá því í samfélagsmiðlafærslu að það væri „mín ábyrgð sem leiðtoga“ að leggja „allt til hliðar, jafnvel þá reglu að stærsti flokkurinn eigi að leiða“. Hann nefndi að hann yrði sjálfur forsætisráðherra í upphafi kjörtímabilsins en tók ekki nánar fram hvernig því yrði skipt. Hann yrði þó „staðgengill forsætisráðherra“ á meðan Eisenkot gegndi embætti forsætisráðherra.
Þannig myndu fylkingarnar mynda saman svokallaða þjóðstjórn án Arabaflokkanna.
Eisenkot hefur brugðist við tilboði Netanjahús og sagðist ætla að ganga til viðræðna við flokk hans. „Ef Likud [flokkur Netanjahús] er tilbúinn í raunverulegt samstarf þá er ég tilbúinn að meta það næstu 24 klukkustundir hversu einlægur sá vilji [flokksins] er.“