Mál þar sem leikskólastarfsmaður á Akranesi er grunaður um kynferðisbrot gegn barni hefur verið fellt niður. Ákvörðun ákærenda um að fella niður málið hefur verið kærð.
Þetta hefur Vísir eftir Karli Inga Vilbertssyni varahéraðssaksóknara.
Lögreglan á Vesturlandi handtók karlmann, sem var starfsmaður leikskólans Garðasels á Akranesi, þann 17. mars vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Maðurinn hafði hafið störf á Garðaseli mánuði fyrr og starfaði meðal annars á deild með þriggja ára börnum.
Þegar lögregluembætti vísar máli til héraðssaksóknara er það til marks um að rökstuddur grunur sé um brot.