Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), hvatti Bandaríkin í gær til að aflétta efnahagsþvingunum á Kúbu.
Frá því í janúar hafa Bandaríkin viðhaldið þungum aðgerðum gegn landinu, þar á meðal með banni við innflutningi á olíu. Þær refsiaðgerðir bætast ofan á viðskiptabann Bandaríkjanna sem hefur verið í gildi síðan árið 1962.
Kúba glímir nú við lamandi efnahagskreppu, þá verstu í marga áratugi. Rafmagnsleysi er nánast daglegt brauð, olíuskortur er viðvarandi og mikill skortur er á nauðsynjavörum. Þá er opinber þjónusta sögð á barmi þess að hrynja.
Heilbrigðismál í slæmu ástandi
Tedros er nýkominn úr heimsókn á Kúbu og segist vera miður sín yfir því að hafa séð þar ganga sjúkrahúsa fulla af börnum. Hann segir heilbrigðismál á Kúbu vera í slæmu ástandi og tengdi hann það beint við þvinganirnar.
Tedros tilkynnti jafnframt að Who muni verja tveimur milljónum bandaríkjadala, jafnvirði um 125 milljóna íslenskra króna, í bólusetningar barna á Kúbu og kaup á nauðsynlegum lækningatækjum.
Fyrr í vikunni benti Tedros á að meðalævilengd Kúbverja hefði lækkað um fjögur ár, úr 78,8 niður í 74,4, á fimm árum. Það er í fyrsta skipti sem þessi tala lækkar frá því að skráningar hófust árið 1950.
Einnig segir Tedros dánartíðni ungbarna hafa meira en tvöfaldast á sama tíma. Hún hefur aukist úr um það bil fjórum dauðsföllum á hverjar þúsund lifandi fæðingar í tíu.