Sérfræðihópur mun senn vera skipaður sem mun útfæra breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hérlendis.
Þingsályktunartillaga þess efnis var samþykkt á Alþingi í dag en tillagan var lögð fram af Höllu Hrund Logadóttur, þingmanni Framsóknarflokksins. Allir viðstaddir þingmenn kusu með tillögunni.
Sérfræðihópurinn mun vera skipaður af atvinnuvegaráðherra í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, innviðaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þróunin vekur upp spurningar
Mun hópurinn skila skýrslu á Alþingi sem nýtt verður sem innlegg í fyrirhugað frumvarp um breytingu á jarðalögum sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram á næsta þingi.
Í þingsályktunartillögunni segir að hún sé lögð fram í ljósi langtímahagsmuna Íslands í auðlindamálum.
Segir þar að sú þróun að erlendir aðilar séu í auknum mæli að kaupa jarðir hérlendis veki upp margs konar spurningar um nauðsyn þess að styrkja lagaramma og stjórnsýslu málaflokksins.