Líkamsleifar karlmanns sem slökkviliðsmenn á landbúnaðarsvæði í Salerno-héraði á Suður-Ítalíu fundu á dögunum reyndust vera af íþróttafréttamanni úr héraðinu. Saksóknarar telja manninum hafa verið ráðinn bani.
Slökkviliðsmenn fundu líkið þegar þeir voru að vinna að því að ráða niðurlögum elds á landbúnaðarsvæði í sveitarfélaginu Eboli í Kampaníu.
Síðar kom í ljós að hinn látni var Luigi Esposito, fimmtíu og þriggja ára gamall íþróttafréttamaður.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu Raffaele Cantone, saksóknara í Salerno. Hann segir fyrstu niðurstöður rannsóknar lögreglu benda til þess að Esposito hafi verið myrtur.
Ástæða morðsins enn á huldu
Landsamtök ítalskra blaðamanna staðfestu að Esposito hafði verið skráður blaðamaður. Hann fjallaði um íþróttir fyrir ýmsa staðbundna fjölmiðla, meðal annars sem álitsgjafi og ritstjóri. Samhliða blaðamennsku starfaði hann hjá umhverfisstofnun félagsins.
Samtökin segja Esposito hafa verið skotinn til bana og lík hans síðan brennt innan um gróður á svæðinu. Lögregla rannsakar málið. Enn liggur ekki fyrir hver stóð að morðinu eða hver ástæða þess var.
Carlos Bartoli, forseti samtakanna, segir þau bíða eftir ítarlegri niðurstöðum til að „skilja samhengið þar sem hrottalegt morð samstarfsmanns“ átti sér stað.