Dómsmálaráðherra segir að Angjelin Sterkaj hafi ekki fengið neinn afslátt af refsingu sinni. Ævilangt endurkomubann á Schengen-svæðið tryggi að hann komi ekki aftur til landsins.
Sterkaj, sem er frá Albaníu, var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að myrða samlanda sinn Armando Beqirai í Rauðagerði árið 2021. Morðið vakti mikinn óhug enda hrein aftaka þar sem Sterkaj skaut Beqirai níu sinnum. Vísir greindi frá því í gær að Sterkaj hefði fengi reynslulausn og væri kominn aftur til Albaníu þar sem hann er frjáls ferða sinna. Það var gert á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti í vetur og kveða á um að hægt sé að veita útlenskum föngum, sem engin tengsl hafa við landið, reynslulausn þegar þriðjungur refsitíma er liðinn.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, lagði frumvarpið fram. Hún segir að ráðuneyti hennar hafi verið upplýst um að til stæði að láta Sterkaj lausan. „Þarna lá fyrir að þessa manns biði brottvísun og í stað þess að hann færi inn á Vernd, færi út í samfélagið með ökklaband þar sem markmiðið er að aðlaga menn aftur til þátttöku í samfélaginu þá er honum einfaldlega brottvísað strax og afplánun lýkur. Þessi maður er ekki að fá neinn afslátt á eiginlegri refsingu heldur fær ekki þessi úrræði sem þjóna því að aðlaga menn aftur út í samfélagið.“
Varanlegt endurkomubann
Þorbjörg segir að markmiðið hafi verið að hann færi ekki aftur út í íslenskt samfélag. Það sé tryggt með brottvísun og endurkomubanni á Schengen-svæðið sem telur 29 ríki. „Endurkomubannið er ævilangt inn á allt Schengen svæðið. Hann er ekki aftur væntanlegur til Íslands. Þetta er hættulegur maður og ég held að íslenskt samfélag sé öruggara eftir að þessi maður er farinn af landi brott.“