Íslenskir lífeyrissjóðir í Epstein skjölunum – kynferðisbrotamaðurinn tíður gestur á Íslandi

Íslenskir lífeyrissjóðir og Framtaksssjóður Íslands(FÍ) koma við sögu í Epstein skjölunum sem birt voru fyrir helgi. Í skjali nr: EFTA01116140.pdf Kemur fram í bréfi, stílað á Nicolas L. Ribs og undirritað af Thomas Justice, að Commercial Empire Capital(CEC) hópurinn á Íslandi hafi verið í stöðugum samskiptum við þrjá stærstu lífeyrissjóði á Íslandi við að setja saman samning og að FÍ stýri fjárfestingum 18 lífeyrissjóða á Íslandi.
Þá koma fram upplýsingar um kaup sem var kynnt fyrir Íslenska Framtakssjóðnum árið 2011.
Lífeyrissjóðirnir sem eru nefndir í skjalinu eru Lífeyrissjóður Verslunarmanna, Gildi, Stapi, Almenni lífeyrissjóðurinn og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, og eru eignir þeirra taldar upp:
Sameiginlegar mánaðartekjur lífeyrissjóðanna eru sagðar um það bil 86.000.000 dollara. „Þeir eru sjóðheitir án þess að hafa reynslumikið og hæft teymi til að leiðbeina þeim,“ segir jafnframt í bréfinu.
Þá er því haldið fram að CEC hópurinn á Íslandi hafi sögu sem felur í sér háttsettar stöður hjá Fjárfestingarsjóði Evrópu, Seðlabankanum og fjármálaráðuneytinu - en tekið er fram að þeir eru í grundvallaratriðum þrýstihópar fyrir CEC.
Framtakssjóðurinn er skilgreindur sem hálfgert einkafjárfestingarfélag í samningnum sem stýrir fjárfestingum 18 lífeyrissjóða á Íslandi. Þá er tekið fram að sjóðurinn stýri og ráðleggi fjárfestingar að andvirði um það bil 20 milljarða Bandaríkjadala, þar af eru um það bil 4,5 milljarðar Bandaríkjadala í erlendum eignum utan Íslands. Lífeyrissjóðirnir eiga um 4,5 milljarða Bandaríkjadala í verðbréfasjóðum og einkafjárfestingarsjóðum erlendis.
Justice segist sannfærður um að ef Colony muni fjárfesta eða jafnvel veita ráðgjöf við kaupin, þá munu þeir vera í frábæru aðstöðu til að stjórna eignum þriggja stærstu lífeyrissjóðanna á Íslandi.
Íslenski Framtakssjóðurinn var lagður niður árið 2018. https://is.wikipedia.org/wiki/Framtakssjóður_Íslands
Bréfið í heild má lesa hér og hér neðar:
Jeffrey Epstein tíður gestur Íslandi
Frá árinu 2011 virðist Jeffrey Epstein hafa verið tíður gestur á íslandi ásamt samstarfsfólki sínu, þá tók ástkona hans Ghislaine Maxwell þátt í ráðstefnu á íslandi árið 2013.
Hér neðar má sjá skjáskot af tölvupóstum úr Epstein skjölunum þar sem Íslandsferðir koma við sögu:
Þegar blaðamaður leitaði eftir CEC hópnum á Íslandi þá er ekkert um hann að finna, þá er ekkert heldur að finna um sjóðinn í Bandaríkjunum, en hann er skráður í skjalinu sem Commonwealth Empire Capital(CEC) með aðsetur á Madison Avenue í New York. Gervigreindin var einnig spurð út í fyrirtækið en engar upplýsingar er þar að finna heldur.
Epstein skjölin í heild má lesa hér, sláið inn "Iceland" í leitargluggar til að finna gögnin um Ísland.








