„Það stendur yfir greining og viðgerð,“ segir Magni R. Sigurðsson hjá netöryggissveitinni Cert-Is, sem greinir frá biluninni í samtali við Vísi. Ekki sé um alvarlega bilun að ræða.
„Í rauninni höfum við séð að þetta hefur áhrif á einhverjar þjónustur og vefsíður og virðist detta inn og út,“ bætir hann við.
Hann segir að einhverjar vefsíður með viðskeytinu .is hafi tilkynnt um vandræði.
Fyrr í dag náðist ekki tenging við vefsíðu Reykjavíkurborgar. Auk þess tilkynnti Ljósið, endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, á Facebook á þrettánda tímanum í að símakerfi samtakanna lægi niðri en að unnið væri að viðgerðum. Ekki liggur fyrir hvort vandamálin séu tengd.