„Brekkan verður alltaf upp. Ef hún er niður þarf að setja ný markmið,“ segir Benedikt Skúlason stofnandi Lauf Cycles. Reiðhjólaframleiðandinn fagnar 15 ára afmæli. Saga fyrirtækisins er rakin á sýningu í Hönnunarsafni Íslands.
Benedikt stofnaði Lauf eftir að hafa kynnst sveigjanleika koltrefja við þróun gervifóta hjá Össuri. Úr varð sérstakur fjöðrunargaffall og síðar eigin hjól. Lauf hefur nú selt um 13 þúsund hjól, flest í Bandaríkjunum.
Hjólin eru samsett í Virginíu en íhlutirnir framleiddir í Kína. Þegar Bandaríkjaforseti snarhækkaði tolla taldi Benedikt fyrirtækið ítrekað vera á leið í þrot. Vöruþróun og trú fjárfesta héldu því þó á floti. Lauf hefur hafið framleiðslu á rafmagnshjólum og hyggst þrefalda umsvifin á næstu árum. Fjallað var um Lauf Cycles í Kastljósi.