Ísland í hverri stórmyndinni á fætur annarri

Ísland í hverri stórmyndinni á fætur annarri

Ísland í hverri stórmyndinni á fætur annarri

Íslandi hefur brugðið fyrir í fjölda stórra kvikmynda á þessu ári: Ódysseifskviðu (The Odyssey), Ofurstelpunni (Supergirl), Meisturum alheimsins (Masters of the Universe) og Grænlandi 2 (Greenland 2: Migration). Þá verður Ísland einnig í stórmyndinni Dúna: Þriðji kafli (Dune: Part Three) sem er frumsýnd í desember.

Ódysseifskviða og Dúna verða líklega meðal vinsælustu kvikmynda ársins. Fyrri kvikmyndin hefur á um hálfum mánuði halað inn rúmum 900 milljónum bandaríkjadala og er sem stendur fimmta söluhæsta kvikmynd ársins.

„Þetta kemur allt í einhverjum svona sveiflum. Maður hefur nú séð stærri ár en þetta eru klárlega stórir póstar og sérstaklega eins og Odyssey – hún vekur gríðarlega athygli og það sama mun Dune 3 gera sem er frábært fyrir Ísland,“ segir Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins Truenorth, í viðtali við fréttastofu.

Í næsta mánuði er væntanleg kvikmyndin Á barmi stríðs (The Brink of War) sem fjallar um Höfðafundinn 1986. Kvikmyndin gerist að langmestu leyti á Íslandi og var að öllu leyti skotin hérlendis – líka þær senur í henni sem gerast erlendis. Á barmi stríðs er enn ekki á dagskrá hjá íslenskum bíóhúsum en Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóa, segir verið að semja um sýningar á henni hérlendis. Kvikmyndin verður frumsýnd erlendis 11. ágúst.

Til viðbótar við þessar kvikmyndir má benda á að Íslandi hefur einnig brugðið fyrir í öðru vinsælu afþreyingarefni. Opnunaratriði tölvuleiksins 007: Fyrsta skin (First Light), sem fjallar um breska njósnarann James Bond, var til að mynda á Íslandi. Þá var Háifoss í forgrunni í lokaþætti geysivinsælu Netflix-þáttanna Eitthvað furðulegt (Stranger Things). Þátturinn var að vísu frumsýndur á gamlársdag á síðasta ári.

Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri sagði fyrr á árinu að alþjóðlegar kvikmyndir, sjónvarpsþættir, tónlistarmyndbönd og annað afþreyingarefni hefði áhrif á komu um helmings ferðamanna til landsins samkvæmt landamærarannsókn Ferðamálastofu.

Ekki stærsta árið hingað til

Truenorth veitir stórum hluta þeirra alþjóðlegu kvikmyndaverkefna sem hingað koma þjónustu. Við heyrðum í Leifi B. Dagfinnssyni, framkvæmdastjóra Truenorth, og spurðum hann að því hvort árið sé það stærsta fyrir Ísland á stóra tjaldinu.

„Nei, kannski ekki alveg. Þetta eru stór nöfn og stórar myndir sem eru að koma núna á þessu ári eins og Odyssey, Christopher Nolan, og síðan í desember kemur Dune 3, Denis Villeneuve. Þetta eru tvær kvikmyndir sem voru myndaðar hérna á síðasta ári,“ segir Leifur. Hann bætir því við að árin 2012 og 2019 hafi einnig verið mikið af stórum kvikmyndaverkefnum með viðkomu hérlendis.

„Það hafa verið allt upp í fjórar stórmyndir skotnar á einu ári eins og þegar við gerðum Oblivion, Noah, [The Secret Life of] Walter Mitty og Thor: The Dark World.“

Allar þessar kvikmyndir voru frumsýndar árið 2013 að undanskilinni kvikmynd Darrens Aronofskys um örkina hans Nóa sem kom út ári síðar. Stórmyndin Stjörnuflakk: Á dimmum slóðum (Star Trek: Into Darkness) sem var skotin hér að hluta var reyndar einnig frumsýnd 2013.

Stórbrotið landslag, frábært starfsfólk og há endurgreiðsla

Leifur segir að það séu fyrst og fremst þrjú atriði sem laða erlendar framleiðslu til landsins: Íslenska landslagið og hve aðgengilegt það er, þekking og gæði íslensks kvikmyndagerðarfólks og endurgreiðslur til framleiðenda.

„Sem er 25 og 35%. Í dag, til þess að Ísland geti verið samkeppnishæft til þess að ná í þessar stóru myndir, verðum við að vera með 35%,“ segir Leifur. „Við myndum ekki fá eins margar myndir til okkar, eins og við erum búin að vera að sjá eða í þessu magni, nema við værum með þessa endurgreiðslu og Ísland myndi bjóða upp á hana. Það er bara lykilatriði.“

Ef ekki væri fyrir endurgreiðsluna væri sennilega einungis komið hingað í svokallaðar plate-shoots sem þýða má sem plötutökur. Það eru kvikmyndatökur þar sem efni er skotið, einkum landslag, sem síðar meir verður unnið með í eftirvinnslu og er gjarnan notað sem bakgrunnur. Fyrir slíkar tökur koma ekki allir sem tengjast framleiðslu verkefnisins til landsins, til dæmis leikarar.

„Þetta væri einhver bakgrunnur og einhverjir fimm manns myndu koma að utan og vera í fimm daga og fara í burtu. En ekki sko fimm hundruð manns sem koma og eru í tvær, þrjár vikur að meðaltali.“

Leifur segir íslenskt starfsfólk talið með því betra í heiminum.

„Það skiptir líka sköpum í þessu að það er gott aðgengi að tökustöðum,“ segir Leifur.

„Þú finnur ekki svona fjölbreytileika neins staðar í heiminum á einum og sama staðnum. Við erum með stórbrotið landslag og náttúru sem fólk sem fólk hefur ekki séð annars staðar og íslensk birta hjálpar líka til. Af hverju Ísland? Jú, þetta er svo aðgengilegt. Við komumst að þessum stöðum. Það er ekkert grín að fara með þrjú hundruð manns eða fimm hundruð manns eða þúsund manns á suma af þessum tökustöðum sem væri ekki hægt annars staðar.“

„Auðvitað er stórbrotin náttúra annars staðar í heiminum en þar hefurðu ekki þetta aðgengi. Við höfum þessa svörtu sanda. Við höfum þessi grænu fjöll í contrast [til mótvægis]. Uppi á hálendinu, hjá Drekavatnaleið og norður að Veiðivötnum, erum við með svarta í rauninni eyðimörk. Þetta eru meira að segja staðir sem margir Íslendingar hafa ekki komið á sjálfir. Það er aðgengið að þessum, hvað skal segja, furðulegu náttúrustöðum.“

Er mikið af erlendum verkefnum á döfinni, þá jafnvel af stórum verkefnum sem eru víðtækari en plötutökur?

„Já, sem betur fer. Það er ýmislegt í pípunum. Það er búið að vera frekar mikil þurrð, fyrstu sex mánuði ársins það er að segja, þegar kemur að kvikmyndatökum en það er ýmislegt búið að vera í undirbúningi. Mér sýnist vera svona bjartara framundan en það sem helst í hendur er að dollarinn þarf að vera sterkur, það er að segja veik íslensk króna, og endurgreiðslan verður að vera til staðar. Þá eigum við séns og getum haldið áfram vegna þess að ég held að fólk sé ekkert búið að fá neitt leið á Íslandi eða neitt slíkt. Ef eitthvað þá vilja þeir koma hingað í miklu meira mæli.“

Inntur eftir því hvaða verkefni séu væntanleg sem hafa verið skotin á Íslandi nefnir Leifur þáttaröðina um Hringadróttinssögu, Töfrahringina (The Rings of Power), og ónefnda þáttaröð sem gerist í heimi Stjörnustríðs. Það hlýtur að vera önnur sería af þáttaröðinni Ahsoka en engar aðrar Stjörnustríðsþáttaraðir, sem ekki eru teiknimyndaðar, eru væntanlegar.

Þetta er fjarri því að vera í fyrsta skipti sem Ísland er nýtt fyrir Stjörnustríð. Íslensku landslagi bregður einnig fyrir í kvikmyndunum Rogue One, Mátturinn vaknar (The Force Awakens) og Disney+ þáttaröðinni Mandalórinn (The Mandalorian).

#annarri #fætur #hverri #stórmyndinni #ísland

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-03-island-i-hverri-stormyndinni-a-faetur-annarri-482892

📰 Aðrar fréttir

Hatrammar fjölskylduerjur - Vildi fella niður erfðarétt stjúpsonar sem keypti 275,5 m.kr. eignir á 500 þúsund krónur
📅 17.09.2026 👁️ 1
Hatrammar fjölskylduerjur - Vildi fella niður erfðarétt stjúpsonar sem keypti 275,5 m.kr. eignir á 500 þúsund krónur
Karlmaður hefur í annað sinn verið sýknaður af kröfu stjúpmóður sinnar um missi erfðaréttar eftir föður sinn og um ógildingu á kaupsamningi þar sem fa...
„Við höldum í fjallarómantíkina“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
„Við höldum í fjallarómantíkina“ - Vísir
„Já, þetta eru ansi miklar framkvæmdir,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, yfirskálavörður Ferðafélags Íslands, en hann er yfir verkinu. Stefán Jökull se...
Rússar kjósa sér 450 skoðana­bræður - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Rússar kjósa sér 450 skoðana­bræður - Vísir
Þetta eru fyrstu kosningarnar sem haldnar eru í Rússlandi frá því innrásin í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Ráðamenn í Rússlandi vilja, samkvæmt AP fré...
Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning
📅 17.09.2026 👁️ 1
Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning
Stjórn Eflingar lýsti samstöðu með Wolt-sendlum í dag eftir að um 60 sendlar lögðu niður störf í gær til að mótmæla kjaraskerðingu. Þeir sögðu fyrirtæ...
Höfnun aðildarviðræðna ekki höfnun Evrópusamstarfs
📅 17.09.2026 👁️ 1
Höfnun aðildarviðræðna ekki höfnun Evrópusamstarfs
Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, segir að þó að Íslendingar hafi hafnað aðildarviðræðum við Evrópusambandið hafi þeir ekki hafnað Evrópusams...
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
📅 17.09.2026 👁️ 1
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið Aug­lýs­ing­ar á meng­andi vör­um og þjón­ustu verða bann­að­ar í bresku borg­inni Bristol á aug­lýs­ing...
Archbishop withdraws award from Muslim cleric who praised Bin Laden
📅 17.09.2026 👁️ 1
Archbishop withdraws award from Muslim cleric who praised Bin Laden
The award was handed out last week, on the anniversary of the 9/11 attacks.
Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? - Vísir
Nafnið hefur verið vinsælt víða um heim, sérstaklega í enskumælandi löndum, og bera fjölmargir þekktir einstaklingar nafnið, þar með taldir þekktir le...
„Það tók viku að vinna í Rúriki“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
„Það tók viku að vinna í Rúriki“ - Vísir
Máni ræddi þetta og fleira við tónlistarmanninn og góðan vin sinn Friðrik Dór í þættinum Milli vina, sem er íslenskur menningarþáttur á Sýn þar sem tv...
Handrukkarinn sem frelsissvipti æskuvin sinn og niðurlægði hann kynferðislega fær þyngri dóm - „Sleiktu þetta“
📅 17.09.2026 👁️ 2
Handrukkarinn sem frelsissvipti æskuvin sinn og niðurlægði hann kynferðislega fær þyngri dóm - „Sleiktu þetta“
Landsréttur hefur þyngt refsingu eins sakborningsins í Vatnagarðsmálinu, en alls voru þrír dæmdir í málinu sem varðaði frelsissviptingu og hrottalegt ...
Inga svarar Guðmundi Inga fullum hálsi - „Ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans “
📅 17.09.2026 👁️ 2
Inga svarar Guðmundi Inga fullum hálsi - „Ég er bara ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans “
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, sagði í kvöldfréttum RÚV að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefði krafist...
Ísak Berg­mann og Agnes Perla eiga von á barni - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ísak Berg­mann og Agnes Perla eiga von á barni - Vísir
„Við verðum þrjú í byrjun apríl,“ skrifaði parið við sameiginlega færslu sem þau birtu á Instagram. Á myndinni má sjá Agnesi með Ísaki sem heldur á só...
„Skrýtið að sparka í fólk á þess veikustu stundu“
📅 17.09.2026 👁️ 2
„Skrýtið að sparka í fólk á þess veikustu stundu“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að samtal Ingu Sæland, formann...
Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir
📅 17.09.2026 👁️ 1
Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir
„Hann er sár út í þetta allt saman. Ég skil það að mörgu leyti. Ég er líka sár og leið yfir að því sé verið að brigsla manni um ýmislegt sem á ekki vi...
„Ofsa­lega leið og sár yfir þessari fram­göngu hans“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
„Ofsa­lega leið og sár yfir þessari fram­göngu hans“ - Vísir
„Ég hringdi einu sinni í konuna hans til þess að spyrja hvernig Guðmundur hefði það og hvort hann gæti tekið á móti gestum og ég upplifi þetta ekki í ...
Óðinn segir þetta skýra nöp sumra við RÚV: „Auðvitað rauðir af skömm út af klúðrinu“
📅 17.09.2026 👁️ 2
Óðinn segir þetta skýra nöp sumra við RÚV: „Auðvitað rauðir af skömm út af klúðrinu“
Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Jónsson segir að frétt RÚV um klúðrið við lóðaúthlutun Hafnarfjarðarbæjar til Tækniskólans skýri hvers vegna sumum stjórnmálam...
Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar
📅 17.09.2026 👁️ 2
Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar
Níu karlmenn eru kærðir í tengslum við Straumsvíkurmálið svokallaða. Þar af eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír íslenskir. Ákæruvaldið hefur farið ...
Arnaldur vill verða forseti ASÍ
📅 17.09.2026 👁️ 2
Arnaldur vill verða forseti ASÍ
Arnaldur Grétarsson hefur tilkynnt framboð sitt til forseta Alþýðusambands Íslands.„Mér rennur blóðið til skyldunnar nú þegar ég skynja sterkt ákall u...
Nær fjórir af hverjum tíu bitnir - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Nær fjórir af hverjum tíu bitnir - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup þar sem þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar. 39 pró...
Einfaldur meirihluti dugir til að samþykkja breytingar á kosningalögum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Einfaldur meirihluti dugir til að samþykkja breytingar á kosningalögum
Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja ti...
Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti
📅 17.09.2026 👁️ 2
Nýtt innviðafélag á að veita vegfarendum valkosti
Nýtt ríkisfyrirtæki, Göng & brú, sem ætlað er að hraða uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi, kynnti í dag áform sín fyrir innlendum og erlendum fj...
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða - Vísir
David Gabríel var ákærður fyrir að stinga annan mann með hnífi mánudaginn 13. júní 2021. Atvikið átti sér stað á gatnamótum Hafnarstrætis og Naustanna...
Hvetur til þess að Reykjavík fái ekki að hafa þingmenn
📅 17.09.2026 👁️ 3
Hvetur til þess að Reykjavík fái ekki að hafa þingmenn
Jón Bjarnason fyrrum ráðherra og þingmaður Vinstri grænna er vægast sagt ósáttur við niðurstöðu starfshóps sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsm...
UK Youth Parliament looks set to be axed
📅 17.09.2026 👁️ 4
UK Youth Parliament looks set to be axed
Some say scrapping the parliament for 11 to 18-year-olds would be a blow for democracy, while others say it is overdue.
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum
Davíð Bjarni Thoroddsen var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir gróft ofbeldi og kynferðisbrot gagnvart æskuvini sínum sem hann fre...
Charles 'sounded giddily elated' after Diana died, Earl Spencer claims
📅 17.09.2026 👁️ 1
Charles 'sounded giddily elated' after Diana died, Earl Spencer claims
Buckingham Palace has strongly pushed back against claims in a new book by the late Princess of Wales's brother.
Ukrainian guilty of vandalism at mosques linked to Russian network behind Starmer arson attack
📅 17.09.2026 👁️ 3
Ukrainian guilty of vandalism at mosques linked to Russian network behind Starmer arson attack
Illia Bilyk, a 21-year-old Ukrainian man, has pleaded guilty to targeting five locations in east London.
Njörður telur tímabært að Íslendingar skipti um þjóðsöng – Leggur til að þetta verði sá nýi
📅 17.09.2026 👁️ 5
Njörður telur tímabært að Íslendingar skipti um þjóðsöng – Leggur til að þetta verði sá nýi
Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, telur tímabært að Íslendingar hugi að því að skipta...
Saka Wolt um að svíkja verkafólk um lágmarkskjör
📅 17.09.2026 👁️ 5
Saka Wolt um að svíkja verkafólk um lágmarkskjör
Stjórn Eflingar hefur lýst yfir samstöðu með sendlum Wolt á Íslandi, fram kemur í yfirlýsingu að störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækj...
Kinkaði kolli til barna sinna áður en hann var tekinn af lífi
📅 17.09.2026 👁️ 5
Kinkaði kolli til barna sinna áður en hann var tekinn af lífi
LeJames Norman, fertugur Bandaríkjamaður, var tekinn af lífi í Texas í gær, rúmum tveimur áratugum eftir að hann skaut þrjár manneskjur til bana í mis...
Opinberar loksins hvers vegna hann hætti í Flokki fólksins - „Þá fór mér nú að blöskra“
📅 17.09.2026 👁️ 4
Opinberar loksins hvers vegna hann hætti í Flokki fólksins - „Þá fór mér nú að blöskra“
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, hefur nú loksins greint frá aðdraganda þess að hann sag...
Warm words on Canada's EU 'associate membership' but no guarantees
📅 17.09.2026 👁️ 2
Warm words on Canada's EU 'associate membership' but no guarantees
There is no certainty that the idea will ever get off the ground, let alone become a blueprint for other countries, writes Katya Adler.
Nefnd á vegum SÞ segir Bandaríkin hafa framið stríðsglæpi í Íran
📅 17.09.2026 👁️ 4
Nefnd á vegum SÞ segir Bandaríkin hafa framið stríðsglæpi í Íran
Mannréttindasérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna segja rökstuddan grun um að Bandaríkjaher hafi framið stríðsglæpi í stríðinu í Íran með tveimur ár...
Sam­félags­miðlasér­fræðingur sækist eftir for­mennsku í ASÍ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Sam­félags­miðlasér­fræðingur sækist eftir for­mennsku í ASÍ - Vísir
Arnaldur, sem er mannfræðingur að mennt, hefur starfað fyrir ASÍ frá 2021 en þá var hann ráðinn í starf samfélagsmiðlasérfræðings á skrifstofu samband...
Tillögur um ný kosningalög „örvæntingarfull tilraun Viðreisnar“
📅 17.09.2026 👁️ 4
Tillögur um ný kosningalög „örvæntingarfull tilraun Viðreisnar“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi segir tillögur að breytingum á kosningalögum gamalkunnar. Hann telur þetta örvæntingarfulla tilrau...
Samherji reynir að fá úrskurði hnekkt – Íbúi sem kærði segist vilja anda að sér hreinu lofti
📅 17.09.2026 👁️ 4
Samherji reynir að fá úrskurði hnekkt – Íbúi sem kærði segist vilja anda að sér hreinu lofti
Framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir óvissu um framhaldið hjá fiskþurrkuninni á Laugum, eftir að starfsleyfi þeirra var fellt úr gildi. Þeir le...
Ekki sama hvort það er skógarþröstur í Vesturbæ eða Kópavogi
📅 17.09.2026 👁️ 4
Ekki sama hvort það er skógarþröstur í Vesturbæ eða Kópavogi
Það er ekki sama hvort þú ert í Kópavogi eða Vesturbæ Reykjavíkur þegar þú hlustar á söng skógarþrasta. Skógarþrestir á Íslandi hafa nefnilega svæðisb...
Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir
Þetta segir Guðmundur Ingi Kristinsson í samtali við RÚV um samskipti sín við Ingu Sæland. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans en þ...
Hætti í flokknum eftir sam­tal Ingu Sæ­land við eigin­konuna - Vísir

Rússar hafi skipu­lagt fjölþáttaárás gegn Pól­landi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 5
Rússar hafi skipu­lagt fjölþáttaárás gegn Pól­landi - Vísir
„Samkvæmt upplýsingum leyniþjónustunnar felur áætlun Rússa í sér fjölþáttaárásir með drónum og flugskeytum gegn löndum sem styðja Úkraínu, þar á meðal...
70% of foreign-language 112 emergency calls in the Canary Islands are in English
📅 17.09.2026 👁️ 4
70% of foreign-language 112 emergency calls in the Canary Islands are in English
The Canary Islands’ 112 emergency service handled almost 14,000 calls in languages other than Spanish during the first eight months of 2026, with Engl...
Ed Sheeran: Why is his tour in 'damage control mode'?
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran: Why is his tour in 'damage control mode'?
US stadium owner Robert Kraft says Sheeran asked him to match his own $2m (£1.5m) donation for "aid in the region".
Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn
📅 17.09.2026 👁️ 4
Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn
Litlar og millistórar útgerðir biðu þess með óþreyju eftir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra gæfi út reglugerð um ráðstöfun þess afla sem rennur ...
Hætti í flokknum eftir að Inga krafðist afsagnar hans á sjúkrabeði
📅 17.09.2026 👁️ 4
Hætti í flokknum eftir að Inga krafðist afsagnar hans á sjúkrabeði
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að Inga Sæland, formaður flokk...
Is Canada about to join the EU?
📅 17.09.2026 👁️ 4
Is Canada about to join the EU?
Ties between Canada and the European Union have been getting closer as trade dispute with the US continue.
Patterns Emerging in the 26/27 Premier League
📅 17.09.2026 👁️ 5
Patterns Emerging in the 26/27 Premier League
As the 2026-27 Premier League season gets underway, drama, tactical innovation and surprising results have been the order of the day with the return o...
Gugga lenti í hræðilegu atviki rétt fyrir fermingu – „Þetta var mikið sjokk og bara ekki gott fólk“
📅 17.09.2026 👁️ 5
Gugga lenti í hræðilegu atviki rétt fyrir fermingu – „Þetta var mikið sjokk og bara ekki gott fólk“
Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir eða Gugga varð landsþekkt ásamt manninum sínum, Jóa heitnum, eftir að Kompás gerði þátt um þau og þeirra neyslu fyrir mörg...
Markvissar aðgerðir skila árangri
📅 17.09.2026 👁️ 3
Markvissar aðgerðir skila árangri
Áhrif loftslagsbreytinga verða sífellt sýnilegri um allan heim og því leggja fyrirtæki og stofnanir aukna áherslu á að draga úr losun og taka þátt í o...
Spanish watchdog challenges extra paperwork for Canary Islands holiday-let owners
📅 17.09.2026 👁️ 4
Spanish watchdog challenges extra paperwork for Canary Islands holiday-let owners
 Holiday-let owners in the Canary Islands have been caught in a new regulatory dispute after Spain's competition watchdog questioned whether they shou...
Frestuðu ákvörðun um afturköllun lóða til tveggja trúfélaga
📅 17.09.2026 👁️ 5
Frestuðu ákvörðun um afturköllun lóða til tveggja trúfélaga
Borgarráð frestaði á fundi sínum í dag að taka ákvörðun um það hvort Reykjavíkurborg ætli að afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við ...