Donald Trump Bandaríkjaforseti er á leið til Kína með fríðu föruneyti þar sem hann ræðir við Xi Jinping forseta og fleiri ráðamenn. Trump, sem heimsótti Kína síðast 2017, kveðst búast við löngum samtölum við Xi um stríðið við Íran, sem meðal annars reiðir sig á olíusölu til Kína.
Bandaríska fjármálaráðuneytið ákvað á mánudag að beita refsiaðgerðum gegn nokkrum kínverskum einstaklingum og fyrirtækjum vegna þeirra viðskipta. Trump gerði í gær lítið úr ágreiningi við kínverska ráðamenn vegna stríðsins.
Kínverski utanríkisráðherrann Wang Yi hefur virst óþolinmóður og hvatti leiðtoga beggja ríkja til að setjast umsvifalaust að samningaborði með milligöngu Pakistana.
Auðkýfingurinn Elon Musk og Tim Cook, forstjóri Apple, eru í hópi nokkurra stjórnenda hátæknifyrirtækja sem slógust í för með Trump til Kína og líklegt þykir að þróun gervigreindar verði ofarlega á baugi í viðræðum leiðtoganna.
Á morgun, fimmtudag, verður sérstök móttökuathöfn í Beijing og að henni lokinni hefjast tvíhliða viðræður Xis og Trumps. Um kvöldið verður efnt til viðhafnarkvöldverðar. Á föstudag hittast leiðtogarnir og ræða saman yfir hádegisverði áður en bandaríska sendinefndin kveður Kína síðdegis þann dag.
Utanríkisráðherrann Marco Rubio fær að koma inn í landið og standa við hlið Trumps þótt kínversk yfirvöld hafi beitt hann viðskiptarefsingum vegna afstöðu hans til mannréttindamála í Kína meðan hann var öldungadeildarþingmaður.
Hann var meðal annars aðalflutningsmaður frumvarps um viðskiptaþvinganir á Kína vegna þrælkunarvinnu Úígúra.
Rubio, sem er harður andkommúnisti, gagnrýndi jafnframt valdbeitingu gegn mótmælendum í Hong Kong og hefur lýst Kína sem fordæmalausum andstæðingi Bandaríkjanna.
Rubio hefur síðar tekið afstöðu með Trump sem lýsir Xi Jinping sem persónulegum vini sínum.
Frá því hann tók við ráðherraembætti hefur annað kínverskt tákn verið notað til að skrifa fornafn Rubios en áður var gert, sem þykir til marks um vilja Kínverja til diplómatískrar lausnar málsins. Rubio segir þó af og frá að steypa framtíð Taívan í hættu fyrir viðskiptasamning við Kína.
Trump kveðst jafnframt ætla að ræða við Xi um vopnasölu Bandaríkjanna til Taívan, sem er stefnubreyting enda hafa bandarískir ráðamenn staðfastlega viðhaldið þeirri venju að bera ekki stuðninginn við eyríkið undir Kínverja.
Trump kveðst treysta á að vinátta þeirra Xi komi í veg fyrir innrás Kína í Taívan. Ofurvald Kínverja á markaði með jarðefni og tolladeila ríkjanna er talin munu setja mark sitt á heimsóknina í ljósi nokkurs samdráttar í efnahag Kína.