Mohammad Bagher Ghalibaf, þingforseti og helsti samningamaður Íransstjórnar, segir að Bandaríkin verði að samþykkja nýjustu friðaráætlun Írana í fjórtán liðum eða hljóta afhroð ella.
Helstu ákvæðin væru um lok stríðsins á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, losun hafnbanns Bandaríkjanna og að frystingu íransks fjármagns erlendis linni.
Ghalibaf lýsti þessu yfir á X skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti staðhæfði að vopnahléð væri að renna út í sandinn og að tillögur Írana væru algerlega óásættanlegar. Sigur Bandaríkjanna væri í sjónmáli. Þau viðbrögð urðu til þess að olíuverð hækkaði á mörkuðum.
Íranski byltingarvörðurinn hefur haldið æfingar í Teheran sem ætlað er að mæta öllum atlögum Bandaríkjamanna og Ísraela að sögn ríkismiðla landsins. Hvorugt ríki hefur viljað slaka nokkuð á kröfum sínum og bæði hafa hótað áframhaldandi árásum án þess að virðast vilja beinlínis halda styrjöldinni áfram.
Bandarísk leyniþjónusta segir hernaðarmátt Írana enn talsverðan
Bandaríkjamenn segja óásættanlegt að Íranir stjórni áfram umferð um Hormússund. Tilboð Írana er svar við tillögum Bandaríkjanna sem fátt hefur verið látið uppi um utan þess að bandarískir miðlar segja því hafa fylgt minnisblað um endalok átaka og frumdrög að endurnýjuðum viðræðum um kjarnorkuáætlun Írans.
Um það bil 70 prósent allra þeirra eldflauga sem Íranar höfðu yfir að ráða fyrir stríð eru enn til auk þess sem skotpallar fyrir þær eru enn virkir að mati bandarískrar leyniþjónustu. The New York Times segir mat leyniþjónustumanna að Íranir búi því enn yfir umtalsverðum árásarmætti.
Íransher hefur einnig endurheimt 30 af 33 eldflaugaskotsvæðum meðfram Hormússundi að mati leyniþjónustunnar. Donald Trump forseti hefur staðhæft að Íransher hafi verið brotinn á bak aftur.
Fréttin var uppfærð með frétt NY Times af eldflaugamætti Írana.