Íranskir ráðamenn segja það undir Bandaríkjamönnum sjálfum komið hvort styrjaldarátök hefjist á ný eða að komist verði að friðarsamkomulagi. Íranar væru reiðubúnir hvorri leiðinni sem farin yrði, til að tryggja öryggi landsins og þjóðarhag.
Aðstoðarutanríkisráðherrann Kazem Gharibabadi lét þessi orð falla í samtali við erlenda sendimenn í Teheran að sögn ríkisfréttastofunnar IRIB.
Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst í færslu á Truth Social senn ætla að yfirfara friðarumleitanir Írana þótt hann væri efins um að hann gæti fallist á þær. „Þeir hafa ekki enn goldið nægilega háu verði brot sín gegn mannkyni seinustu 47 ár,“ skrifaði Trump.
Aðspurður á blaðamannafundi vildi forsetinn ekki tíunda hvað gæti orðið til þess að Bandaríkin legðu til atlögu að nýju. Hann útilokaði það ekki, gerðu Íranir eitthvað slæmt, eins og hann orðaði það.
Friðaráætlun í 14 liðum
Íran hefur lagt friðaráætlun í fjórtán liðum fyrir Bandaríkjastjórn með milligöngu Pakistana, samkvæmt fréttum íranskra ríkismiðla, Tasnim og Fars. Helstu atriðin miða að endalokum stríðsátaka á öllum vígstöðvum og lausnir fyrir opnun hins mikilvæga Hormússunds.
Enn hefur fátt verið látið upp um innihald tillagnanna að öðru leyti en vefritið Axios segir að erindrekinn Steve Witkoff hafi krafist þess að ákvæði um kjarnorkuáætlun Írana yrði hluti samkomulagsins.
Mohammad Jafar Asadi, háttsettur foringi í Íransher, sagðist í dag telja líklegra að átök brjótist út að nýju. Bandaríkjamenn skeyttu hvorki um skömm né heiður, samkomulag væri einskis virði í þeirra augum.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum íranskra miðla um innihald tillagnanna.