Héraðsdómur Reykjavíkur segir að ákvörðun landlæknisembættisins um að hafna beiðni Intuens spegilómunar um að geta boðið heilskimun án tilvísana standist ekki lög. Dómstóllinn felldi ákvörðunina úr gildi í morgun og dæmdi landlækni til að greiða Intuens 2,5 milljónir í málskostnað.
Landlæknisembættið og Intuens hefur síðustu ár greint á um starfsemi fyrirtækisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins sóttu um leyfi til myndgreiningarþjónustu 2023. Landlæknisembættið hafði þá bent þeim á að skylt væri að tilkynna um starfsemina, hún hafði þá þegar verið auglýst fyrir félagsmenn Krafts.
Intuens fékk heimild til að bjóða upp á myndgreiningar á grundvelli tilvísana frá læknum en landlæknisembættið hefur synjað beiðnum um að það geti gert slíkt án tilvísana. Það varð til þess að fyrirtækið höfðaði mál til ógildingar ákvörðun landlæknisembættisins.
Dómurinn var fjölskipaður með lækni sem sérfróðan meðdómanda. Dómurinn sagði að rökstuðningur landlæknisembættisins fyrir synjun væri á köflum óljós. Hann sagði að skýrar heimildir og rökstuðning þyrfti til að réttlæta takmarkanir á atvinnufrelsi. Því væri ekki að heilsa í þessu tilfelli. Því var úrskurðurinn felldur úr gildi.