Innræting leikskólakennara er samfélaginu til skammar
Það er ekki ofsögum sagt um menntakerfið, að innræting kennara blómstrar. Menn hafa þvertekið fyrir að innræting eigi sér ekki stað, sem er þvert á raunveruleikann.
Gleðiganga er svokölluð Pride á útlensku. Norskir foreldrar og stjórnmálamenn hafa hafnað slíkri innrætingu í norksum leikskólum og hafa sumir séð sig tilneydda til að halda barninu sínu heima á með leikskólabörn fagna ,,Pride“, að frumkvæði leikskólakennara.
AuglýsingGleðiganga 1-5 ára barna. Hvað er það annað en innræting?
Börn, 1-5 ára, fagna fjölbreyttri kynhneigð, BDSM og kynlífslöngun af ólíkum toga, hvað er í gangi hjá leikskólakennurum?
Pride, eða Gleðiganga, vísar til baráttu fólk sem skilgreinir sig hinsegin, ólíkra kynhneigðar, fólks með ónot í eigin skinni sem sættir sig ekki við eigið kyn, kynvitund sem gerist í kolli fólks, fjölkynhneigð, BDSM o.fl. í þá veru.
Af hverju finnst leikskólakennurum mikilvægt að lítil börn, 1-5 ára merki sig í slíkri göngu? Hugmyndir og þemu fullorðinna eiga ekki að komast inn í heim barna. Börn eiga að fá að þroskast eðlilega og ekki vera dregin inn í sjálfsmyndarferli sem þau hafa ekki þroska í.
Lítil börn eiga að vera börn, fullorðið fólk á ekki að troða baráttumálum sínum, pólitík og trúarbrögðum upp á börn.
Innræting fánans
Vandamálið við trans fána, hvaða nafni sem hann nefnist, er að um pólitík er að ræða, ekki saklausan hlutlausan fána. Haldi leikskólastjórar það, og kennarar, er þekking þeirra lítil á táknum, litum fánanna og baráttusamtökunum sem fánarnir fyrirstilla.
Svo er annað sem fylgir þessari innrætingu, breyting á túlkun regnbogafánans. Til að réttlæta innrætingu á litlum börnum, af hendi leikskólakennara, þá reyna menn að breyta merkingu fánans, tala um mannréttindi, mannúð o.fl. í þeim dúr. Gera fánann að einhverju öðru en hann í reynd er. Hér er um pólitískan hagsmunafélagsfána að ræða sem á ekki heima í leik- og grunnskólum og undir þessu mega lítil börn eins árs til fimm ára sitja undir.
Hvílík réttlæting, hvílíkt ofbeldi á litum börnum.
Foreldrar rísið upp
Síðan eru það foreldrarnir. Það má hafna innrætingu af þessu tagi. Foreldrar eiga að skrifa bréf til stjórnenda og hafna valdníðslunni sem fylgir innrætingunni sem getur haft áhrif á börn. Vísið til laga um rétt ykkar, stjórnarskrávarin rétt að hafna þessu.
Það má setja ofan í við leikskólakennara sem vilja innræta litum börnum á þennan hátt. Þegar sömu hugmyndir eru endurteknar í gegnum skóla, heilbrigðiskerfi og kerfi sem snúa að börnum, verðum við að spyrja okkur hvaðan þær koma. Er þetta eitthvað sem vex innan frá hjá einstaklingnum, eða eitthvað sem er mótað utan frá eða svokölluð innræting í skólakerfinu.
Reykjavíkurborg þarf flokka sem hafna svona innrætingu á leikskólum borgarinnar. Stjórnmálamenn verða að stoppa við og axla ábyrgð. Þeir verða að þora að spyrja spurninga, taka þátt í umræðu og grípa inn í þegar þróun fer í ranga átt.
Leikskólastjórar virðast hvorki bera vit né gæfu til að hafna svona innrætingaraðferðum. Hvað þá leikskólakennarar.
Áróðurstáknin eru út um allt, innræting á sér stað í leikskólum borgarinnar. Ekki kæmi á óvart að Jafnréttisskóli borgarinnar fari fremstur þegar kemur að þessari innrætingu með samþykkt stjórnmálaflokka sem stjórna borginni.
Já er ekki kennarastéttin dásamleg!
Helga Dögg Sverrisdóttir
Auglýsing