Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, á stofnfundi samtakanna Áfram Ísland hefur vakið mikla athygli. Af því tilefni hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri, rifjað upp þegar hún og Ólafur Ragnar ræddu EES-samninginn árið 1992.
Ingibjörg Sólrún rifjar upp ummæli Ólafs Ragnars: „Hann hafði rangt fyrir sér þá og er einhver ástæða til að ætla annað núna?”