Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, er snúin aftur úr 18 daga veikindaleyfi.
Inga tilkynnti endurkomu sína í beinu streymi á Facebook-reikningi sínum í dag, þar sem hún var á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Þar kvaðst ráðherrann hafa glímt við skæða flensu.
„Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Ég er búin að ná mér eftir þessa leiðindaflensu sem ég er búin að vera að glíma við eins og svo margir landsmenn,“ segir Inga og bendir á að kjörnir fulltrúar hljóti engar undantekningar þegar komi að veikindum.
„Við erum ekki róbottar.“
Eftir ríkisstjórnarfund séu atkvæðagreiðslur á þinginu fram undan og kvaðst Inga spennt að snúa aftur til starfa.