Svo virðist sem inflúensufaraldrinum sé lokið þetta árið. Síðustu þrjár vikur hafa greinst fjögur til fimm tilfelli á viku, að því er fram kemur á vef Landlæknis. Þar segir að því megi líta svo á að faraldrinum sé lokið.
Inflúensufaraldurinn hófst snemma þennan veturinn og var í hámarki í desember þegar yfir hundrað tilfelli greindust tvær vikur í röð.