Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið fluttur úr fangelsi á Shifa-einkasjúkrahúsið í höfuðborginni Islamabad að kröfu hæstaréttar landsins. Þar mun meðal annarra einkalæknir Khans annast hann.
Ríkisstjórnin hafði reynt að koma í veg fyrir að hann yrði fluttur þangað. Hundruð lögreglumanna, margir vopnaðir kylfum, umkringdu sjúkrahúsið og öllum leiðum þangað var lokað.
Khan var einnig fluttur á sjúkrahús fyrr á árinu að kröfu ættingja hans sem sögðu hann hafa misst nánast alla sjón á hægra auga. Ástæða sjúkrahúsvistarinnar núna eru áhyggjur af versnandi almennu heilsufari Khans, háum blóðþrýstingi og alvarlegum augnvandamálum.
Khan, sem er 73 ára, og eiginkona hans Bushra Bibi voru í desember 2024 dæmd til sautján ára fangavistar fyrir spillingu.
Hann hafði áður hlotið margvíslega og dóma og hefur setið í fangelsi síðan 2023. Khan hefur ávallt sagt ákærurnar pólitískar og til þess eins að stöðva hann í að komast til valda á ný.