Innanríkisráðherra Frakklands segir slökkviliðsmenn standa frammi fyrir „fordæmalausum aðstæðum“ í Gironde-héraði þar sem skógareldar geisa. Frakklandsforseti boðaði ríkisstjórn sína á neyðarfund í dag vegna eldanna og hitabylgju sem færist yfir landið á næstu dögum.
Um 40 þúsund hektarar af landi, svæði sem nemur um 56.000 fótboltavöllum, hafa þegar orðið eldinum að bráð í Gironde-héraði, um fimmtán kílómetra suður af borginni Bordeaux. Í Gironde búa um 850 þúsund manns en á fjórða hundrað þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna.
Efast um hvort mannafli og búnaður dugi til
Eldurinn breiddist lítið út í nótt eftir að rigna tók og vind lægði. Eldurinn hefur verið svo sterkur að yfir honum myndaðist eins konar eldingaský. Slík veðurfyrirbæri verða til þegar mikill hiti þeytir heitu lofti, reyk og ösku hátt upp í andrúmsloftið. Skýin geta myndað vindhviður og eldingar og þannig aukið enn frekar á styrk eldsins.
Jean-Luc Gleyze, forseti héraðsráðs Gironde, hefur lýst yfir áhyggjum af því að mögulega séu hvorki nógu margir slökkviliðsmenn né slökkvibílar í öllu Frakklandi til að ráða niðurlögum eldsins.
Um 2.500 slökkviliðsmenn, 18 flugvélar og 1.500 hermenn hafa verið send á vettvang.
Macron fer til Gironde í dag
Að loknum neyðarfundi ríkisstjórnar Frakklands í dag sagði Laurent Nuñez, innanríkisráðherra landsins, að slökkviliðsmenn á svæðinu stæðu frammi fyrir „fordæmalausum aðstæðum“. Hann sagði eldinn hafa róast þrátt fyrir að enn hefði ekki tekist að ná tökum á honum.
Samkvæmt Nuñez gera veðurskilyrði og samsetning skóglendisins í Gironde eldinn ófyrirsjáanlegan – hann virðist lifa sjálfstæðu lífi. Eldurinn breiðist í allar áttir og því er erfitt að hafa hemil á honum.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti heldur til Gironde síðar í dag. Þar hittir hann fulltrúa héraðsstjórnar, slökkviliðsmenn og aðra sem sinna viðbragðsstarfi.
Spáð er allt að 40 stiga hita í vestanverðu Frakklandi í vikunni. Ekki er gert ráð fyrir miklum vindi en breyting á vindátt gæti leitt til þess að eldarnir breiðist enn frekar út.