Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri líftæknifyrirtækisins Alvotech, kveðst íhuga að flytja frá Bretlandi vegna skattastefnu stjórnvalda og þess sem hann kallar óstöðugleika í viðskiptaumhverfinu.
Róbert flutti ásamt fjölskyldu sinni frá Íslandi til Lundúna árið 2019.
Í viðtali við breska viðskiptamiðilinn Business Matters segir Róbert að hann telji breytingar á erfðafjárskatti, fjármagnstekjuskatti og öðrum reglum, vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, hafa gert Bretland síður aðlaðandi fyrir fjárfesta og auðmenn.
Brexit hafi skapað óvissu
„Allt kerfið hefur breyst svo mikið að það gerir bæði erlendum fjárfestum og fólki sem hefur búið hér lengi erfitt fyrir að vera áfram,“ segir Róbert í viðtalinu.
Að hans mati er Bretland ekki lengur sérstaklega fyrirtækjavænt.
Hann bendir á að Brexit hafi skapað mikla óvissu fyrir atvinnulífið og að sífelldar breytingar á skattalöggjöf hafi aukið þá óvissu enn frekar.
Fyrirtæki þurfi stöðugleika
„Lönd byggjast á atvinnusköpun, vel launuðum störfum og verðmætasköpun. Það er mikilvægt að stjórnvöld skilji að fyrirtæki og fjárfestar þurfa stöðugleika til að geta byggt upp starfsemi til lengri tíma,“ sagði hann.
Róbert stofnaði fjárfestingafélagið Aztiq í Lundúnum árið 2021 og hefur undanfarin ár byggt upp Alvotech sem alþjóðlegt líftæknifyrirtæki sem nýtir rannsóknar- og framleiðslustarfsemi á Íslandi.
Alvotech gerir líftæknilyf sem byggð eru á frumlyfjum sem hafa misst einkaleyfisvernd sína.
