Í dag undirrituðu Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjarasamningsviðræðna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.
Þar segir að bæði Icelandair og FÍA hafi samþykkt tillögu ríkissáttasemjara að verkstýrðri verkáætlun undir friðarskyldu. Unnið verði eftir henni þar til samningum er náð með það að meginmarkmiði að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september 2026.
Félögin hafa sammælst um að vinna saman í góðri trú að framgangi viðræðna og stuðla að uppbyggingu gagnkvæms trausts sín á milli. Á meðan á samningaviðræðum stendur skuldbinda bæði félög sig til að styðja við stöðugan og öruggan rekstur Icelandair og vernda hagsmuni flugfélagsins.
„Aðilar eru sammála um að flugmenn, stjórnendur og aðrir starfsmenn Icelandair séu í sama liði og vinni saman með hagsmuni félagsins að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.