Icelandair hefur ákveðið að hætta rekstri Boeing 757 véla í áætlunarflugi um ári fyrr en áætlað var. Í tilkynningu félagsins segir að þær fjórar sem eftir eru verði teknar úr notkun fljótlega eftir áramót og með þessu sé verið að bregðast við mikilli hækkun á eldsneytisverði.
Þegar mest var voru um 30 Boeing 757 vélar í flota Icelandair og voru þær í notkun hjá félaginu í rúma þrjá áratugi. Þeim hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2018 og félagið nýtt nýrri kynslóð véla á borð við Boeing 737 MAX og Airbus A321LR. Þær nota allt að 30% minna eldsneyti á hvert sæti. Félagið ætlar einnig að hætta með Boeing 767 breiðþotur í ársbyrjun 2027.
Ákvörðun um að hætta með Boeing 757 veldur því að örlítill meiri samdráttur verður á flugframboði Icelandair. Áður hafði félagið tilkynnt um 5% samdrátt á framboði næsta haust.