Ótti við afbrot og vímuefnaneyslu
Íbúar hafa lýst áhyggjum af vímuefnaneyslu gesta Kaffistofunnar og sömuleiðis ótta við fjölgun innbrota og önnur afbrot og telja að starfsemin eigi ekki heima í miðju íbúðahverfi.
Í samantekt Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um útköll í eða við Kaffistofuna 2023 til 2025 kemur fram að lögregla hafi á tímabilinu verið kölluð til alls 149 sinnum, átján sinnum árið 2023, fimmtíu sinnum árið 2024 og svo 81 sinnum árið 2025.
Flestar tilkynningar vörðuðu aðstoð við borgarana eða almenna tilkynningu. Í samantektinni kemur fram að aðstoð við borgarana fól oftast í sér að óvelkomnum var vísað á brott, aðstoð vegna ölvunar eða annarlegs ástands og aðstoð vegna veikinda. Tilkynning var oftast vegna óláta/slagsmála og afbrigðilegrar hegðunar.
Tvær stórfelldar líkamsárásir
Á þremur árum hafa samtals þrettán líkamsárásir verið skráðar við kaffistofu Samhjálpar við Borgartún og Hátún, þar af tvær stórfelldar. Í samantektinni kemur fram að hún er unnin að beiðni Reykjavíkurborgar og er dagsett 15. apríl á þessu ári. Tekin voru út gögn um öll mál tímabilið 1.1.2023 til 30.9.2025 þar sem vettvangur var Borgartún 1 og frá 1.10.2025 til 31.12.2025 við Hátún 2 þar sem kaffistofan er tímabundið.
Fjallað var um það fyrr í mánuðinum að hópur íbúa hefði lagt fram stjórnsýslukæru vegna samþykkis Reykjavíkurborgar á byggingarleyfisumsókn. Í kærunni er meðal annars byggt á því að starfsemin sé ranglega flokkuð og að hún krefjist breytinga á deiliskipulagi. Kröfu íbúanna um stöðvun framkvæmda var hafnað af nefndinni en samkvæmt svörum frá nefndinni er hennar viðmið að afgreiða mál innan þriggja mánaða frá því að hún móttekur þau.
Engar óafturkræfar breytingar
Í úrskurði nefndarinnar segir að í ljósi þess að ekki er um óafturkræfar breytingar á húsnæði að ræða sé ekki talin knýjandi þörf á því að stöðva þær á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni.
„Þá má og líta til þess að þrátt fyrir að framkvæmdir séu hafnar á grundvelli byggingarleyfis hefur hin umdeilda starfsemi sem fyrirhuguð er í húsnæðinu ekki hafist. Reikna má með að úrskurður nefndarinnar í máli þessu muni liggja fyrir áður en framkvæmdum lýkur. Verður kröfu kærenda þar um því hafnað,“ segir að lokum í bráðabirgðaúrskurðinum.
Framkvæmdir hafnar
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samhjálpar segir framkvæmdir hafnar í húsnæðinu. Samhjálp tók það upphaflega á leigu í haust en hafa frá því að þau misstu húsnæði sitt í Borgartúni sinnt starfseminni í kjallara í húsnæði Fíladelfíusöfnuðarins. Guðrún Ágústa segir að hún vonist til þess að geta opnað nýja Kaffistofu á Grensásvegi um mánaðarmótin maí júní.