Íbúafundur var haldinn í Grindavík í gær kl. 16.30. Hafði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra verið boðið á fundinn ásamt þingmönnum Reykjaness og Fasteignafélaginu Þórkötlu. Kristrún mætti ekki á fundinn og enginn frá fasteignafélaginu. Vakti mynd af Kristrúnu í pizzapartýi í gærkvöldi mikla reiði meðal margra grindvíkinga.
Sjá einnig: Grindvíkingar ævareiðir yfir pitsupartýi Valkyrjanna – „SKAMMIST YKKAR!!!“
Í yfirlýsingu aðstoðarmanns forsætisráðherra í framhaldi af fréttinni segir að Kristrún hafi látið vita skipuleggjendur fundarins vita að hún kæmist ekki á fundinn, eigi að síður hafi fundurinn verið auglýstur með þátttöku hennar án samráðs. Á mánudag um leið og afboðun var send hafi forsætisráðherra boðist til að funda með bæjarstjórn Grindavíkur síðar í vikunni og í næstu viku mun Kristrún funda með íbúasamtökunum Járngerði.
Yfirlýsingin hljóðar svo: