Stjórn SÁÁ kom saman í gær vegna vantraustsyfirlýsingar starfsmanna og alvarlegrar stöðu innan samtakanna. Til fundarins mættu aðalstjórnarmenn, framkvæmdastjórn, fráfarandi forstjóri, fráfarandi yfirmaður lækninga og þrír starfsmenn SÁÁ og tóku til máls.
Greint var frá því um helgina að sextíu og þrír starfsmenn SÁÁ skrifuðu undir yfirlýsingu og lýstu yfir vantrausti á formann samtakanna, Önnu Hildi Guðmundsdóttur, og framkvæmdastjórn samtakanna.
Þá var einnig greint frá því í síðustu viku að Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á Vík, hefðu báðar tilkynnt að þær myndu láta af störfum hjá samtökunum og að gerður hefði verið starfslokasamningur við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. María Heimisdóttir landlæknir sagði embættið líta stöðuna innan samtakanna mjög alvarlega.
Sjá einnig:
„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“
Í tilkynningu frá aðalstjórn í dag kemur jafnframt fram að stjórn hafi í gær komið saman vegna þessarar stöðu sem upp er komin innan samtakanna og vantraustsyfirlýsingar starfsmanna á framkvæmdastjórn SÁÁ. Á fundinum hafi stjórnin aflað upplýsinga frá ólíkum aðilum og gefið starfsfólki kost á að ræða sín sjónarmið. Að því loknu hafi verið samþykkt ályktun.
Í tilkynningu segir að aðalstjórn leggi ríka áherslu á stöðugleika, fagleg vinnubrögð, öryggi og áframhaldandi öfluga þjónustu við skjólstæðinga SÁÁ og að þegar hafi verið kallaðir til utanaðkomandi aðilar og vinna hafin sem miði að því að skapa vinnufrið, öryggi og traust í starfseminni.
„Sú vinna verður unnin í samráði við þá sem málið varðar og með hagsmuni starfsfólks, skjólstæðinga og starfsemi SÁÁ að leiðarljósi. SÁÁ telur mikilvægt að sjónarmið starfsfólks fái að koma fram og að tekið sé á ólíkum skoðunum með málefnalegum og faglegum hætti. Forgangsverkefni næstu daga er því að eiga samtal við starfsfólk samtakanna, byggja upp traust og tryggja þann vinnufrið sem nauðsynlegur er fyrir öfluga og trausta þjónustu,“ segir í tilkynningunni og að þess vegna ætli samtökin ekki að veita fjölmiðlum viðtal að svo stöddu.
Ályktun í heild sinni:
„Aðalstjórn SÁÁ lýsir yfir stuðningi við framkvæmdastjórn félagsins í þeirri vinnu sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta SÁÁ haldi áfram í styrkum farvegi. Þá leggur aðalstjórn áherslu á mikilvægi þess að styðja við stöðugleika, fagleg vinnubrögð og áframhaldandi öfluga þjónustu við skjólstæðinga samtakanna. Aðalstjórn leggur fyrir framkvæmdastjórn að fela utanaðkomandi aðila að skapa vinnufrið, öryggi og traust í starfseminni. Aðalstjórn þakkar starfsfólki sem hefur látið sig málefni félagsins varða þar sem mikilvægt er að sjónarmið þeirra komi fram og að tekið sé á ólíkum skoðunum á málefnalegan hátt. Aðalstjórn óskar eftir því að framkvæmdastjórn upplýsi hana reglulega um framvindu mála og mun fylgjast með þeirri vinnu sem fram undan er, með það að markmiði að viðhalda öflugu starfi SÁÁ, faglegri og traustri þjónustu og góðum starfsanda.“