Hvíta húsið kynnti í dag stafrænan spilasal á vefsíðu sinni með fimm einföldum tölvuleikjum sem tengjast stefnumálum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þar geta spilarar meðal annars reist landamæramúr og vísað innflytjendum úr landi.
Í „Build the Wall“ þarf leikmaður að verja landamærin með því að byggja múr í leik sem er byggður á Tetris. Í „Rio Run“, sem minnir á Snake, eltir stafræn útgáfa af Tom Homan, sérstökum fulltrúa Trumps í landamæramálum, innflytjendur við Rio Grande-fljótið á landamærum Mexíkó.
Í „Supply Line“ þarf leikmaður að flokka mat eftir kröfum átaksins „Make America Healthy Again“ ( „Gerum Bandaríkin heilbrigð á ný“ er undirskrift leiksins „Supply Line“).
Tveir leikjanna tengjast öðrum stefnumálum forsetans. Í „Flappy Bill“ flýgur örn með lagafrumvarp yfir National Mall í Washington og í „Trump Savings Tycoon“ safnar leikmaður peningum í svokallaða Trump-sparnaðarreikninga. Þeir fela í sér 1.000 dala innborgun fyrir börn sem fæðast á kjörtímabili Trumps, á árunum 2025 til 2028.
„Spilað með líf fólks“
Mannréttindasamtök gagnrýna Hvíta húsið fyrir leikina. Amerika Garcia Grewal, meðstjórnandi Frontera Federation í Texas, segir að sér verði „óglatt“ við að sjá hvernig farið sé með líf fólks í tölvuleikjunum.
Hún segir ekkert tillit tekið til lífsgæða raunverulegs fólks og að hönnuðir leikjanna hafi misst sjónar á því hvað það þýði að vera manneskja og bera umhyggju fyrir öðrum.
Hvíta húsið segir leikina hins vegar nýja leið til að koma stefnu og árangri ríkisstjórnarinnar á framfæri.
„Þessi ríkisstjórn einbeitir sér alfarið að því að finna nýjar leiðir til nýsköpunar og segja frá mörgum afrekum forsetans á þann hátt sem höfðar til allra Bandaríkjamanna,“ sagði Hvíta húsið í yfirlýsingu til fréttastofu AFP.
Þar segir einnig að leikjunum sé ætlað að draga fram andstæðurnar milli menningar sem einkennist af gleði og sigrum annars vegar og þess sem Hvíta húsið kallar „myrka sósíalíska framtíðarsýn“ demókrata hins vegar.
Reikningur Hvíta hússins á X birti myndskeið með „Make America Great Again“-merkinu (MAGA), sem byggt er á merki tölvuleikjaframleiðandans Sega.