Allhvassri suðaustanátt er spáð undir Eyjafjöllum í nótt og á morgun með hviðum um 30 metrum á sekúndu.
Hviður geta náð um 25 metrum á sekúndu þvert á veg á Reykjanesbraut og jafnvel einnig við Hafnarfjall á morgun, einkum nærri hádegi.
Hægari vindur verður eftir klukkan 16 og lægir annað kvöld, að því er veðurfræðingur Vegagerðarinnar greinir frá.