Dyggir aðdáendur heimsmeistaramótsins í knattspyrnu hafa eflaust tekið eftir því hversu margir leikmenn mótsins spila í bleikum takkaskóm en skóframleiðendurnir Nike, Adidas, Puma, New Balance og Sketchers hafa allir útvegað leikmönnum ólíkar tegundir af bleikum takkaskóm í sérstökum útgáfum fyrir heimsmeistaramótið.
Í samtali við The New York Times segir Ben Warren, stofnandi breska fyrirtækisins BW Boots UK, sem sérhæfir sig í sjaldgæfum og klassískum takkaskóm, að algengi bleika litarins á mótinu í ár sé langt frá því að vera tilviljun.
Hann segir ólík vörumerki framleiða skó sem séu meira og minna í sömu litum. Undanfarin ár hafi tíðkast að takkaskór beri svipað yfirbragð en í ár séu skórnir nánast nákvæmlega eins á litinn.
Skærir litir gefi aukið sjálfstraust
Odinga Nimako, yfirmaður hjá íþróttarisanum Nike, segir mikla eftirspurn eftir djörfum litum hafa leitt til þess að fyrirtækið valdi bleikan lit í ár. Íþróttamenn hafi sagt að skærir litir gefi þeim aukið sjálfstraust á stórum stundum og því hafi fyrirtækið einbeitt sér að því að finna sem bjartasta liti við val á takkaskóm mótsins.
„Það sem við heyrum alltaf frá neytendum okkar og íþróttamönnum er að þegar maður klæðist áberandi lit eins og bleikum er það eins og maður þurfi að vera mjög góður til þess að klæðast honum,“ segir Nimako í samtali við fjölmiðla.
„Á sama tíma er bleikur almennt viðurkenndur litur sem gerir hann ekki of sérhæfðan og gerir það að verkum að hann höfðar til fjölda fólks.“
Nimako segir bleika sérstaklega áberandi á grænum velli. Þá hafi enginn litur verið jafn eftirtektarverður þegar fyrirtækið framkvæmdi litaprófanir á takkaskóm í aðdraganda mótsins.
Annar þáttur sem réð litavali takkaskóa í ár er sú staðreynd að engin þátttökuþjóð mótsins í ár leikur í bleikum aðalbúningum, segir Nimako. Hann segir að stundum hafi fyrirtæki farið þá leið að vilja samræma liti aðalbúninga og skóbúnaðar en sú hafi ekki verið raunin í ár.
„Markmið okkar var að tryggja að skórnir skæru sig úr. Í ljósi þess hversu umfangsmikið mótið er í ár vildum við virkilega láta leikmenn skína.“
Flestir leikmenn verða að klæðast skónum sem þeir fá
Þrátt fyrir að mikið fari fyrir bleika litnum í ár eru þó einhverjar stjörnur sem vilja fara aðra leið. Flestir leikmenn mótsins eru samningsbundnir til að klæðast bleiku skónum sem þeim eru gefnir en það á ekki við um alla.
Einn þekktasti fótboltamaður allra tíma, Lionel Messi, fyrirliði Argentínu, spilar til að mynda í hvítum og ljósbláum Adidas-skóm skreyttum gulllit, sem sniðnir eru að argentínska búningnum.
Portúgalska goðsögnin Cristiano Ronaldo, sem spilar á sínu sjötta heimsmeistaramóti í ár, leikur í sérhönnuðum gulllituðum skóm frá Nike.
Þá spilar Christian Pulisic, leikmaður AC Milan og bandaríska landsliðsins, í hvítum skóm með bláum stjörnum sem minna á bandaríska fánann.