Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag

Ivan Nicolai Kaufmann er fimmtugur Lichtensteini, alinn upp af einstæðri móður í skjóli afa síns og ömmu. Ivan er annar í röðinni í landi sínu Lichtenstein sem er skírður Ivan. Hvorki mamma, né afi og amma eru tengd Rússlandi. Sautján ára gamall heimsótti Ivan Ísland. Í maí 2023 keypti Ivan um 80% hlutafjár Vélfags í Eyjafirði af rússneskum sjávarútvegsrisa, Norebo áður en Esb setti viðskiptabann á félagið. Vélfag var stofnað á Ólafsfirði árið 1995 til framleiðslu vélbúnaðar til fiskvinnslu. Norebo hafði selt Vélfag vorið 2023 nokkru áður en það lenti á bannlista Esb. Ivan hefur sagt að óheppilegt hafi verið hversu stutt hafi verið milli kaupa sinna á Vélfagi 2023 og Esb-banns. Oinberlega setti Esb Norebo á bannlista 20. maí 2025 með 17. “bannpakka Esb“.
Hinn óslípaði demantur
Árið 2024 blasti framtíðin við Vélfagi, nýjar glæsilegar höfuðstöðvar á Akureyri, stórt og mikið framleiðsluhús og ör vöxtur. Vélfag þjónaði 83% af íslenskum sjávarútvegi; óslípaður demantur, segir Ivan sem kveðst hafa keypt vegna þriggja tímamóta fiskvinnsluvéla. Ári síðar hafði ógæfan dunið yfir því Vélfag var sett á skotlista utanríkisráðuneytis Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Vélfag var knúð í gjaldþrot í nóvember 2025. Dauðastríð Vélfags stóð í fáeina mánuði eftir að Arion banki frysti bankaviðskipti. Sagt var að Ivan væri rússneskur leppur tengdur skuggaflota Rússa. Einu helsta hátæknifyrirtæki landsins var rústað með pennastriki. Í nóvember 2025 tapaði Vélfag máli gegn íslenska ríkinu fyrir Héraðsdómi, fjörtíu manns misstu vinnu og hundruð afleidd störf töpuðust. Í janúar 2026 lét héraðssaksóknari handtaka fimm manns, handjárna á heimilum frammi fyrir konum og börnum.“Við erum að hefja rannsókn á málefnum Vélfags,“ sagði Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Stjórnarformaður Alfreð Tulinius er sagður með réttarstöðu sakbornings. Mál Vélfags er fyrir Landsrétti.
„Rússaleppur og njósnari Pútíns“ í Brotkasti hjá Frosta
„Ég er í yfirvigt, meðalgreindur og pissa tvisar á nóttu. Ég er ekki ógn við íslenskt þjóðaröryggi,“ sagði Ivan í samtali við Frosti Logason brotkast Nútímans. Sjá video. Ivan sem sagt sakaður um að vera Rússaleppur, njósnari Pútin og tengjast skuggaflota Rússa. Ivan hefur verið útskúfaður á heimaslóð, vinir snúið við honum baki, fjárhagur rústaður, börnin sætt einelti í skóla kölluð “rússneskar hórur“. Í sláandi samtali við Frosta kemur fram að Þorgerður Katrín hafi í þrígang komið því áleiðis að fyrirtækið verði selt Íslendingi. Gjaldþrot Vélfags var ekki að kröfu Esb, en var það til heimabrúks utanríkisráðherra? Ráðuneytið mun engin gögn hafa afhent. Í samtali við Frosta neitaði ÞKG að tjá sig um mál Vélfags.
Banki, ráðuneyti, ráðherra og klíka að tjaldabaki
Ivan talar um gerspilltan Arion-banka, utanríkisráðuneyti, ráðherra og klíku að tjaldabaki. Ivan fullyrðir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi látið skilaboð berast að hann ætti að selja Vélfag til íslensks aðila: „Mér var sagt að selja Íslendingi.“ Hér er málið grafalvarlegt, dauðans alvara. Skilja má á Ivan að „Íslendingurinn“ sé eiginmaður Þorgerðar.
Hvernig Ísland vilja Íslendingar búa börnum sínum og barnabörnum, spyr Ivan: “...Viltu búa í landi þar sem ráðherra hringir og segir: „Þú átt flottan bíl, afhentu syni mínum. Þú átt flott hús, afhentu vini mínum. Þú átt flott fyrirtæki, afhentu eiginmanni mínum.“
Samsæri um að taka fyrirtæki af EES-ríkisborgara
Ef marka má orð Ivan Kaufmann átti að taka Vélfag af réttmætum eigenda og færa Kristjáni Arasyni eiginmanni Þorgerðar Katrínar, einum af eigendum Centra fjármálaráðgjöf þar sem snertast pólitík og viðskipti. Eftir að viðtalið birtist tjáði Alfreð Tulinius stjórnarformaður Vélfags sig á Facebook. Alfreð kveðst hafa fengið skilaboðin um að selja Íslendingi beint frá ráðherra:
„Þorgerður Katrín sagði þetta við mig í tvígang. Einu sinni í símtali, mjög snemma í ferlinu, og svo aftur beint á fundi sem haldinn var klukkan 15:30 sunnudaginn 17. ágúst [2025] í utanríkisráðuneytinu.“ Alfreð bætir við: “Ekki að það skipti megin máli hversu oft þetta var sagt. En það er þá sem sagt fimm sinnum. Hann [Ivan] þarf bara að selja fyrirtækið til Íslendings.“
Inga Sæland í myndsímtali
Alfreð skrifar ennfremur:
„Inga Sæland sagði nákvæmlega það sama við mig í myndsímtali á Messenger,“ og bætir við að tveir ráðherrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sögðu að: “...lausnin væri að selja fyrirtækið til íslensks aðila.“ Ólafsfirðingurinn og ráðherrann Inga Sæland tók sem sagt þátt í aðför að Vélfagi, demanti úr heimabyggð svo um fjörtíu eyfirskar fjölskyldur misstu vinnu auk hundruð afleiddra starfa rústuð. Inga er í veikindafríi.
Með öðrum orðum: Forráðamenn Vélfags eru að halda því fram að utanríkisráðuneytið, Arion-banki, Þorgerður Katrín og Inga Sæland hafi framið samsæri um að taka fyrirtæki af ríkisborgara í Lithenstein búsettum í Sviss, ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu. Ivan kveðst fara með málið alla leið til Strassbourg gerist þess þörf.