Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Mynd: Skjáskot/Ja.is
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á spilinu Kluster vegna segulstyrks í seglum sem fylgja spilinu en þetta kemur fram í tilkynningunni frá HMS.
Segulstyrkurinn er mjög hár að sögn HMS og ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum.
Athugið að búið er að endurútgefa spilið en öryggistilkynningin á sérstaklega við um eldri útgáfur spilsins þar sem seglarnir eru mjög smáir. Nýrri útgáfa af spilinu er með stærri segla og því minni líkur að hægt sé að innbyrða seglana. Framleiðendur hafa sett aldurviðmið spilsins í 14+.
HMS hvetur eigendur spilsins að halda því frá ungum börnum.
Mynd: HMS