Skjálftinn var 7,1 að stærð samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni og mældist á þrettán kílómetra dýpi klukkan 18 að staðartíma, um 22 að íslenskum tíma.
Íbúum í Karrakas var gert að rýma svæði í borginni og Diosdado Cabello, innviðaráðherra landsins, staðfesti í ávarpi í ríkissjónvarpinu í kvöld að einhverjar byggingar hefðu hrunið í jarðhræringunum.
Þá hefur bandaríska viðvörunarkerfið fyrir risaöldum gefið út viðvaranir í Púertó Ríkó, Bandaríkjunum og við Bresku Jómfrúaeyjarnar. Auk þess er hætta á hættulegum öldum við eyjur við strendur Venesúela, til dæmis Arúba og Bonaire.
Margir Venesúelabúar voru heima hjá sér þegar skjálftin var en í dag er hátíðardagur í landinu þar sem haldið er upp á hernarðarsigur Venesúela árið 1821 sem tryggði þeim sjálfstæði frá Spáni, en Venesúela lýsti yfir sjálfstæði 1821.
BREAKING: USGS upgrades Venezuela earthquake to 7.5. Major damage to buildings. pic.twitter.com/0tAOcqrTcW
— AZ Intel (@AZ_Intel_) June 24, 2026