Landtaka Ísraela á Vesturbakkanum í Palestínu eykst sífellt ásamt ofbeldi landtökufólks. Frá október 2023 hefur Ísraelsher drepið á þriðja hundrað börn á Vesturbakkanum án nokkurra afleiðinga, samkvæmt ísraelskum mannréttindasamtökum.
Á bak við tölfræðina er fólk. Tveggja ára barnabarn Bassams Asus var myrt heima hjá sér. „Ég spurði þá hvers vegna þeir myrtu hana. Svarið var: Fyrirgefðu.“
Dóttir Rodaynu Amuri var þrettán ára þegar hún var drepin úti að leik með frænkum sínum. „Skyndilega heyrði ég skotið úr byssu og hún kallaði á mig. Þegar ég kom út sá ég hana liggjandi á jörðinni og hún teygði höndina til mín og bað um hjálp.“
Shai Parnes, talsmaður ísraelsku mannréttindasamtakanna B’Tselem, segir Ísraelsher hafa drepið 240 börn og táninga á Vesturbakkanum frá október 2023. „Og við höfum ekki séð að neinn þurfi að bera ábyrgð.“
Ofbeldi og ofsóknir landtökufólks færst í aukana
Ofbeldi og ofsóknir landtökufólks hafa einnig færst verulega í aukana á Vesturbakkanum. Bróðir Khalil Hathaleen var skotinn til bana í júlí í fyrra. Hinn grunaði, sem býr í ísraelskri landtökubyggð, hefur ekki þurft að svara til saka.
„Ég er hræddur og áhyggjufullur af því að það gilda engar reglur um landtökufólk. Það getur enginn stöðvað það. Herinn getur ekki stöðvað það, lögreglan getur ekki stöðvað það. Stjórnvöld hafa gefið þeim frítt spil,“ segir Khalil.
Þorpið hans, Umm al-Khair, er ekki aðeins skotmark landtökufólks heldur hafa ísraelsk stjórnvöld fyrirskipað að hluti þess verði rifinn. Það er minna en mánuður síðan stjórnvöld settu upp enn aðra útvarðarstöðina nærri þorpinu.
SÞ fordæma fyrirhugaða fjölgun landtökubyggða
Sameinuðu þjóðirnar hafa fordæmt áform stjórnvalda í Ísrael um að fjölga ólöglegum landtökubyggðum til muna á Vesturbakkanum.
„Allar ísraelskar landtökubyggðir og innviðir sem þeim fylgja eru ólöglegar. Þetta er gróft brot á alþjóðalögum og hætta þarf framkvæmdum tafarlaust,“ sagði Ramiz Alakbarov, staðgengill samhæfingarstjóra Sameinuðu þjóðanna í Mið-Austurlöndum, á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.