Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun aðfaranótt laugardagsins 1. nóvember árið 2025. Meint brot var framið í bíl mannsins sem hann hafði lagt á bílastæði á ótilteknum stað á Seltjarnarnesi. Hann er þar sagður hafa tekið stúlku kverkataki þannig að hún átti erfitt með andardrátt, dregið hana til sín í ökumannssætið, kysst hana á munninn og á ber brjóst hennar, sett hönd hennar á getnaðarlim sinn og sett fingur sína inn í leggöng hennar. Stúlkan hlaut flekkblæðingar á hálsi, nuddsár á bæði hné og mar á hægri sköflungi.
Hryllingur á Seltjarnarnesi: Tók ólögráða stúlku kverkataki og nauðgaði henni