Stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu lítur fyrst til Ráðhúss Reykjavíkur, til dæmis breytinga á skrifstofu borgarstjóra, í aðgerðum sínum. „Við horfum til þess sem er okkur næst til að byrja með,“ segir Róbert Ragnarsson, formaður hópsins.
Funduðu með sviðsstjórum í gær
Hópurinn var skipaður á borgarráðsfundi í gær. Í honum eru oddvitar allra flokka, að undanskildum Sósíalistaflokknum og Vinstrinu, auk Róberts sem er formaður hópsins.
Fyrsta skref þeirra var að funda með öllum sviðsstjórum og kalla eftir gögnum og hagræðingartillögum sem þegar eru til í borgarkerfinu.
„Við horfum til, eins og kemur fram inni á verkefnalistanum, að gera ákveðnar breytingar á skrifstofu borgarstjóra,“ segir Róbert og á þar við síðuna verkefnalisti.is þar sem fjallað er um áform nýs meirihluta í borginni.
Þýðir það ekki að það sé verið að fara að ráðast í uppsagnir í Ráðhúsinu?
„Það mun örugglega leiða til þess að stöðugildum fækkar og verkefnum fækki í Ráðhúsinu,“ segir Róbert. Á næstu vikum standi hópurinn frammi fyrir því að velja hvaða verkefni það verða.
„Við ætlum að fara í gegnum þessi verkefni og forgangsraða upp á nýtt eins og eðlilegt er þegar ný stjórn kemur til starfa.“
Ekki víst hvaða stöðugildi verða lögð niður
Það liggur ekki fyrir hvaða stöðugildi verða lögð niður. Róbert heldur þó að vegna fyrri greininga verði hægt að ganga hratt til verks, enda mikilvægt að eyða óvissu.
„Við erum rétt að hefjast handa en við erum komin vel áleiðis, ekki síst vegna þess að það eru ágætis greiningar, gögn og tillögur frá stjórnendum. Þannig að ég hugsa að við getum farið frekar hratt í þetta.“
Ráðist verði í aðgerðir eftir því sem þær eru tilbúnar til ákvarðanatöku.
Inntur eftir því hver næstu skref í hagræðingu verða segir Róbert að hópurinn horfi á kerfið og hagræðingu innan stjórnsýslunnar. „Við erum ekki að horfa á þjónustuna úti á einstökum sviðum,“ segir hann.
Hópurinn fær fyrirliggjandi hugmyndir og tillögur um breytingar í borgarkerfinu afhentar í byrjun næstu viku. „Þá förum við yfir þær og sjáum hvar tækifærin liggja og hvað við getum gengið í,“ segir Róbert.