Á dögunum ákvað bæjarráð Fjallabyggðar að hafna tveimur tilboðum sem bárust í byggingu knatthúss á Ólafsfirði. Tilboðin voru bæði langt yfir kostnaðaráætlun. Hún hljóðaði upp á 401 milljón en tilboðin sem bárust voru tæplega 650 milljónir og rétt rúmur milljarður.
„Planið er það að halda áfram með þetta verkefni þó að við höfum þurft að hætta við núna, eða hafna þessum tveimur tilboðum sem komu. Það var mikill áhugi á þessu útboði og yfir 30 aðilar sem sýndu því áhuga en að lokum komu bara tvö tilboð sem voru bara bæði langt yfir kostnaðaráætlun,“ segir Helgi Jóhannsson, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar.
Ætluðu að klára næsta vor
Upphaflega átti verkið að klárast næsta vor. Ólíklegt þykir að það takist þar sem enn er ekki búið að bjóða verkið út á nýjan leik eftir að tilboðunum var hafnað. Helgi telur mögulegar ástæður fyrir háum tilboðum vera stuttan verktíma. Hann er þó bjartsýnn á að góð niðurstaða finnist. Blikur séu á lofti um kólnun í byggingariðnaði og að sú staða gæti aukið möguleika á betra verði.
„Nú erum við að skoða málin og verið að velta fyrir sér hvaða möguleikar eru í stöðunni með þetta verkefni. Við erum alls ekki hætt við þetta en eitt sem er verið að kanna er að skoða hvort það sé betra að vera með lengri verktíma.“