Hnykkjari, það er kírópraktor, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi í Kaliforníufylki fyrir kynferðisbrot gegn nokkrum konum. Snerti hann á þeim staði sem komu meðferðinni ekkert við til þess eins að svala fýsn sinni.Miðillinn VC Star greinir frá þessu.Hinn 46 ára gamli hnykkjari Fernando Juarez Gomez Jr. mun þurfa að dúsa næstu sex árin í fangelsi eftir að hafa verið dæmdur af dómstóli í Ventura sýslu í Kaliforníu, rétt norðan við stórborgina Los Angeles, þann 14. ágúst.
Hnykkjari frá helvíti – Þuklaði á einkastöðum kvenna til að svala fýsn sinni