Meðal þess sem kom til kasta til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var að tilkynnt var um mann að ógna öðrum með hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra fundu manninn sem var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í miðborginni var einnig framin líkamsárás og einn var handtekinn vegna hennar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Meðal annarra verkefna var að ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og áfengis. Vegfarendur tilkynntu um ökumanninn eftir að hafa séð hann aka bifreið utan í nokkrar bifreiðar í miðborginni og valda talsverðum skemmdum. Hann var vistaður í fangaklefa.
Nokkrir þjófar komust á brott með þýfi sem þeir stálu úr verslun í Garðabæ.
Ökumaður bifreiðar var sektaður fyrir að aka bifreiðinni á gangstétt. Ökumaðurinn játaði brotið og sagðist hafa verið að stytta sér leið.
Í tveimur tilvikum óskuðu leigubílstjórar eftir aðstoð vegna farþega sem neituðu að borga fyrir farið í því síðara er þess getið að farþeginn hafi séð að sér og borgað fyrir farið þegar lögreglan kom á vettvang.
Loks var tilkynnt um tvo menn í annarlegu ástandi ógna vegfarendum í Árbæ. Lögreglan sinnti því og var mönnunum vísað á brott án vandræða.