Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að minnkandi lægð við Noreg stjórni veðrinu á landinu á í dag.
Á morgun verði skýjað og dálítil væta öðru hverju. Bjart verði með köflum en má búast við stöku síðdegisskúrum um landið vestanvert, með líkum á hellidembum. Hiti verði á bilinu sex til sautján stig, mildast á Suðvestur- og Vesturlandi.
Á miðvikudag sé útlit fyrir áframhaldandi norðlæga átt með súld eða rigningu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi, en úrkomulítið og mildara sunnan- og vestantil.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Norðlæg átt 5-10 m/s, en 10-15 austast á landinu. Rigning á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan- og vestantil. Hiti 6 til 17 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag:
Norðvestan 5-13. Væta með köflum á Norður- og Austurlandi og hiti 7 til 11 stig, en þurrt annars staðar með hita 10 til 17 stig.
Á föstudag:
Norðan og norðvestan 5-13 og rigning með köflum, en talsverð úrkoma norðanlands. Þurrt að mestu sunnan- og vestantil. Hiti breytist lítið.