„Ég er að þessu til að styrkja Krabbameinsfélag Austurlands. Krabbamein snertir svo marga. Ég hef heyrt að það séu mjög margir sem vita ekkert af félaginu og ég er í rauninni fyrst og fremst að vekja athygli á því.“
Þetta segir Björn Benedikt Andrésson, ungur Borgfirðingur, sem hljóp á milli Egilsstaða og Borgarfjarðar eystri í dag fyrir Krabbameinsfélag Austurlands. Björn fékk góðan félagsskap hluta leiðarinnar, sem er um 70 kílómetrar.